Job.is er auglýsinga- og upplýsingamiðlun á netinu fyrir laus störf. Við höfum starfrækt þjónustu okkar frá árinu 1999 og því er reynsla okkar ótvíræð. Markmið okkar er að þjóna fólki og einfalda leitina að hentugu starfi á sama hátt og við viljum styðja fyrirtæki í leit sinni að traustu og góðu starfsfólki.
Vefur okkar er einfaldur í notkun og við gætum fyllsta öryggis við meðhöndlun upplýsinga. Við leggjum mikla áherslu á að allar aðgerðir á vefnum séu fljótlegar og einfaldar. Skráning á Job.is tekur örfáar mínútur og áður en þú veist af er umsóknarferlið komið á fullt. Við skráningu sem einstaklingur er ekki krafist fulls nafns og því nýtur þú nafnleyndar í leit þinni að nýjum störfum allt þar til kemur að því að sækja um starf.
Ef þörf er á aðstoð eða skýringum þá hvetjum við þig til að hringja í okkur í síma 552 3335 eða senda okkur tölvupóst á job@job.is. Við leiðbeinum þér eða skráum auglýsinguna fyrir þig með ánægju.
Opnunartími skrifstofu er virka daga frá kl. 09:00 – 16:00. Neyðarsími eftir lokun er 821-1433 (Kolbeinn).
Job.is fyrir einstaklinga - Job.is fyrir fyrirtæki.
Starfsfólk
Kolbeinn Pálsson, framkvæmdastjóri kolbeinn@job.is
Nánar um starfsfólk.
Fyrirtækið
Nettengsl ehf
Kt: 450599-2209
Austurströnd 3
170 Seltjarnarnesi
Tölur og staðreyndir
Job.is var stofnaður árið 1999. Vefurinn hefur verið í stöðugum vexti og ef litið er á árið 2008, þá var fjöldi notenda, samkvæmt Modernus, 169.607 einstaklingar og innlit voru 352.016. Fjöldi starfsauglýsinga sama ár voru 2140. Enginn annar auglýsingamiðill komst nálægt Job.is í fjölda starfsauglýsinga.
Samkvæmt Hagstofu Íslands er um 90% íslensku þjóðarinnar með aðgang að Internetinu og 82% nota netið a.m.k. á hverjum virkum degi. Íslenska þjóðin er mjög netvædd og því er mikilvægt fyrir fyrirtækin í landinu að vera til staðar á veraldarvefnum og vera sýnileg þar sem notendurnir eru. Job.is, með þann fjölda skráðra einstaklinga, skráninga, fyrirtækja og stofnanna, er öflugur miðill bæði fyrir atvinnurekendur og atvinnuleitendur.