Finndu draumastarfið strax í dag! Fjöldi fyrirtækja og stofnana bíður eftir þinni umsókn. Skráðu þig í örfáum þrepum og við gætum fyllsta trúnaðar við meðhöndlun upplýsinga þinna. Fáðu Ferilsmiðinn til þess að hjálpa þér við að gera góða ferilskrá og Job-vaktina til þess að finna rétta starfið.
Á Job.is er mesta framboð lausra starfa á Íslandi, það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig og sækja um. Hjá okkur ríkir fyllsti trúnaður við meðhöndlun þeirra upplýsinga sem að notendur okkar skrá inn. Sem notandi á Job.is nýtur þú nafnleyndar allt þar til að sótt er um starf. Þess vegna getur þú fylgst með framvindu mála á atvinnumarkaðnum, hugsað þér til hreyfings eða bara forvitnast um ný störf án þess að nokkur annar viti af því.
Sem skráður notandi á Job.is getur þú notið aðstoðar Job-vaktarinnar. Job-vaktin er sjálfvirkur umboðsmaður þinn á Job.is. Job-vaktin sefur aldrei, hún leitar stöðugt að draumastarfinu þínu og sendir þér tölvupóst um leið og eitthvað áhugavert kemur upp. Við skráningu í Job-vaktina setur þú upp ákveðin leitarskilyrði og hún vaktar nýjar auglýsingar sem upfylla þín skilyrði. Síðan sendir Job-vaktin þér tölvupóst um leið og starf býðst sem hentar þér. Job-vaktin (áður Umbinn) á job.is hefur tryggt hundruðum einstaklinga starf sem hefði að öðrum kosti farið forgörðum.
Einnig sem skráður notandi hefur þú aðgang að Ferilsmiðnum. Ferilsmiðurinn er sérhæft tól sem aðstoðar þig við að smíða ferilskrána þína í áföngum. Í fjórum stuttum þrepum slærð þú inn þær upplýsingar sem ferilsmiðurinn mælir með að komi fram á ferilskránni. Að því loknu getur þú halað ferilskránni niður sem word-skjali, og auðvitað breytt henni og bætt að vild.
Það er ekki eftir neinu að bíða, skráðu þig á Job.is strax í dag.