Fyrir fyrirtæki

Á Job.is eru þúsundir einstaklinga í leit að lausu starfi hjá fyrirtækjum og stofnunum. Í örfáum þrepum skráir þú fyrirtækið þitt í gagnagrunninn okkar, auglýsir störf og færð svo Job-Pro til þess að sjá um alla umsýslu umsókna, umsækjenda og auglýsinga. Fljótlegt, þægilegt og skilvirkt.

Ráðning starfsfólks er óumdeilanlega eitt mikilvægasta verkefni allra fyrirtækja. Að ráða gott starfsfólk og halda því í starfi skiptir sköpum fyrir árangurinn. Því er mikilvægt að vanda til verka þegar ráða á nýtt starfsfólk, það skiptir miklu að ná til sem flestra hugsanlegra umsækjenda og að umsóknarferlið sé einfalt og gangi hratt fyrir sig.

Frá árinu 1999 hefur Job.is skapað beint samband á milli atvinnurekenda og fólks í atvinnuleit. Notkun veraldarvefsins eykst með ári hverju og nýta einstaklingar jafnt sem fyrirtæki sér hann til sinna helstu aðgerða. Reynsla okkar er á þessu sviði er ótvíræð og fjöldi skráðra einstaklinga á vef okkar í leit að starfi segir sína sögu. Tugir þúsunda einstaklinga eru á skrá hjá Job.is. Þessir einstaklingar fá reglulega sendann tölvupóst frá Job-vaktinni með þeim lausu störfum sem passa við þeirra skilyrði.
 
Við skráningu á job.is opnast gríðarlegir möguleikar fyrir fyrirtæki þitt í að nálgast rétta fólkið í þau störf sem þú vilt auglýsa. Sem fyrirtæki getur þú valið á milli ýmissa lausna í leit að rétta starfsfólkinu. Auðvelt er að skrá fyrirtækið á vefinn og setja inn atvinnuauglýsingar. Einnig er hægt að nýta þjónustuna Job-Pro, en það er eins konar starfsmannastjóri sem auðveldar fyrirtæki þínu alla umsýslu umsókna. Með skráningu fær fyrirtækið þitt eigið lokað svæði með aðgang að tölfræðiupplýsingum sem og eigin síðu þar sem umsækjendur geta lesið sér til um ykkur. Nánari upplýsingar um verð er að finna hér.

Það er auðvelt að skrá sig á Job.is og það tekur örskamma stund. Þú getur sett inn atvinnuauglýsingu að morgni og fyrsta umsóknin um starfið gæti dottið inn sama dag. Skráðu þig á Job.is strax í dag. Ef þú vilt nánari upplýsingar þá er þér velkomið að hafa samband á job@job.is eða í síma 552-3335. Skráðu fyrirtæki þitt á Job.is strax í dag!




Nettengsl ehf. simi (+354) 552 3335 job@job.is