- Hvað er job.is?
Job.is er auglýsinga- og upplýsingamiðlun fyrir laus störf. Við höfum starfrækt þjónustu okkar frá árinu 1999 og því er reynsla okkar ótvíræð. Markmið okkar er að þjóna fólki og einfalda leitina að hentugu starfi á sama hátt og við viljum styðja fyrirtæki í leit sinni að traustu og góðu starfsfólki.
Vefur okkar er einfaldur í notkun og við gætum fyllsta öryggis við meðhöndlun upplýsinga. Við leggjum mikla áherslu á að allar aðgerðir á vefnum séu fljótlegar og einfaldar. Skráning á job.is tekur örfáar mínútur og áður en þú veist af er umsóknarferlið komið á fullt. Við skráningu sem einstaklingur er ekki krafist fulls nafns og því nýtur þú nafnleyndar í leit þinni að nýjum störfum.
Job.is var stofnaður árið 1999. Vefurinn hefur verið í stöðugum vexti og ef litið er á árið 2008, þá var fjöldi notenda, samkvæmt Modernus, 169.607 einstaklingar og innlit voru 352.016. Fjöldi starfsauglýsinga sama ár voru 2140. Enginn annar auglýsingamiðill komst nálægt Job.is í fjölda starfsauglýsinga. Tugir þúsunda eru með skráningar í hina ýmsu starfsflokka.
Samkvæmt Hagstofu Íslands er um 90% íslensku þjóðarinnar með aðgang að Internetinu og 82% nota netið a.m.k. á hverjum virkum degi. Íslenska þjóðin er mjög netvædd og því er mikilvægt fyrir fyrirtækin í landinu að vera til staðar á veraldarvefnum og vera sýnileg þar sem notendurnir eru. Job.is, með þann fjölda skráðra einstaklinga, skráninga, fyrirtækja og stofnanna, er öflugur miðill bæði fyrir atvinnurekendur og atvinnuleitendur.
Nánar um Job.is fyrir einstaklinga - Nánar um Job.is fyrir fyrirtæki.
Ef þörf er á aðstoð eða skýringum þá hvetjum við þig til að hringja í okkur síma 552 3335 eða senda okkur tölvupóst á job@job.is.