- Til hvers á ég að skrá mig?
Á Job.is er mesta framboð lausra starfa á Íslandi, það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig og sækja um. Hjá okkur ríkir fyllsti trúnaður við meðhöndlun þeirra upplýsinga sem notendur okkar skrá inn. Sem notandi á Job.is nýtur þú nafnleyndar allt þar til að sótt er um starf. Þess vegna getur þú fylgst með framvindu mála á atvinnumarkaðnum, hugsað þér til hreyfings eða bara forvitnast um ný störf án þess að nokkur annar viti af því.
Sem skráður notandi á Job.is getur þú notið aðstoðar Job-vaktarinnar. Job-vaktin er sjálfvirkur umboðsmaður þinn á Job.is. Einnig sem skráður notandi hefur þú aðgang að Ferilsmiðnum.Ferilsmiðurinn er sérhæft tól sem aðstoðar þig við að smíða ferilskrána þína í áföngum.
Skráning á Job.is tekur örskamma stund og áður en þú veist af er umsóknarferlið komið á fullt. Skráðu þig á job.is strax í dag!
- Hvað er Job-vaktin?
Job-vaktin er sjálfvirkur umboðsmaður þinn á Job.is. Job-vaktin sefur aldrei, hún leitar stöðugt að draumastarfinu þínu og sendir þér tölvupóst um leið og eitthvað áhugavert kemur upp. Við skráningu í Job-vaktina setur þú upp ákveðin leitarskilyrði og hún vaktar nýjar auglýsingar sem upfylla þín skilyrði. Síðan sendir Job-vaktin þér tölvupóst um leið og starf býðst sem hentar þér. Job-vaktin (áður Umbinn) á job.is hefur tryggt hundruðum einstaklinga starf sem hefði að öðrum kosti farið forgörðum.
Aðeins skráðir notendur á job.is geta nýtt sér þjónustu Job-vaktarinnar. Þjónustan er ókeypis og skráningin tekur örskamma stund. Skráðu þig í Job-vaktina strax í dag og vaktin hefst handa um leið.
- Hvað er ferilskrá?
Þegar sótt er um starf er venja að láta ferilskrá (CV) fylgja umsókninni. Það er mikilvægt að vanda vel til ferilskrárinnar því hún getur haft mikil áhrif á framvindu mála.
Hin dæmigerða ferilskrá inniheldur persónuupplýsingar, s.s. nafn, kennitölu, heimilisfang, netfang og síma. Sumir setja einnig upplýsingar um hjúskaparstöðu og fjölda barna. Einnig er mikilvægt að setja inn upplýsingar um námsferil, s.s. nafn skóla, gráðu, grein og ártal, einnig er skynsamlegt að hafa stutta lýsingu á náminu eða helstu verkefnum. Einnig getur verið gott að tilgreina námskeið.
Ef viðkomandi hefur litla reynslu er áherslan gjarnan lögð á menntun. Þessu er öfugt farið ef reynslan er meginatriðið sem aðgreinir viðkomandi umsækjanda frá öðrum. Því næst koma upplýsingar um starfsferil, helstu upplýsingar sem þar koma fram eru: Vinnustaður, ár og stöðuheiti. Gott er að fara nokkrum orðum um helstu verkefni og ábyrgð í starfi. Mælt er með að byrja á því að tilgreina síðasta starf/það starf sem viðkomandi starfar við í dag. Ef viðkomandi hefur litla reynslu er áherslan gjarnan lögð á menntun..
Í hinni dæmigerðu ferilskrá er einnig gott að fram komi upplýsingar um tungumálakunnáttu, tölvukunnáttu og annað sem gæti nýst í starfinu.
Margir láta stutta persónulýsingu fylgja með, lýsingu á markmiðum og/eða lýsingu á áhugamálum.
Upplýsingar um meðmælendur getur komið sér vel, þar er hægt að nefna nokkra umsagnaraðila/meðmælendur þar sem nöfn, starfsheiti og símanúmer/tölvupóstur eru tilgreind.
- Hvað er Ferilssmiður?
Ferilsmiðurinn er sérhæft tól sem aðstoðar þig við að smíða ferilskránna þína í áföngum. Í fjórum stuttum þrepum sláir þú inn þær upplýsingar sem ferilsmiðurinn mælir með að komi fram á ferilskránni. Að því loknu getur þú halað ferilskránni niður sem word-skjali, og auðvitað breytt henni og bætt að vild.
Aðeins skráðir notendur á job.is getur nýtt sér þjónustu ferilsmiðsins. Þjónustan er ókeypis og skráningin tekur örskamma stund. Skráðu þig á job.is strax í dag!