Spurt og svarað - Fyrirtæki

Fyrirtæki

- Hvernig skrái ég fyrirtækið mitt inn á Job.is?
Til þess að skrá fyrirtæki þitt inn á Job.is ferð þú í “Nýskráning” og slærð inn þær upplýsingar sem beðið er um. Við skráningu fyllir þú út ákveðna reiti sem tryggja að réttar og nægar upplýsingar birtist þegar einstaklingar skoða starfsauglýsingar þínar og sækja um auglýst störf. Þegar skráningu er lokið þá er alltaf hægt að bæta og/eða breyta upplýsingum undir “Stillingar”. Hluti af þeim upplýsingum sem þú gefur upp við skráningu og/eða undir stillingum birtist sjálfkrafa með þeim auglýsingum sem þú setur inn á Job.is

Eftir að fyrirtæki þitt er skráð inn á Job.is getur þú m.a. sett inn starfsauglýsingar, skoðað áður skráðar auglýsingar og keypt aðgang að Job-Pro. Skrá fyrirtæki á Job.is.

- Hvernig skrái ég inn starfsauglýsingu?
Til þess að skrá starfsauglýsingu þarft þú fyrst að skrá fyrirtækið inn í gagnagrunn Job.is, sjá svar fyrir ofan. Ef fyrirtæki þitt er nú þegar skráð inni á Job.is þá smellir þú einfaldlega hér og slærð inn notandanafn og lykilorð.

Eftir skráningu getur þú auðveldlega sett inn nýja starfsauglýsingu í örfáum þrepum, undir “Auglýsing” og “Ný auglýsing”. Þegar þú hefur skráð inn auglýsinguna og Job.is hefur staðfest hana, þá birtist auglýsingin á vefnum. Umsækjendur geta séð hana og einnig sótt um starfið. Þeir einstaklingar sem hafa skráð sig í Job-Vaktina, og ef starfið fellur undir þeirra áhugasvið, fá þeir sjálfkrafa tölvupóst frá Job.is með ábendingu um starfið. Við minnum á hjálpartextana sem eru aðgengilegir hægra megin við flestallar aðgerðir inni á Job.is. Skrá fyrirtæki á Job.is.

- Hvað er Job-Pro?
Job-Pro er þjónusta sem auðveldar fyrirtækjum alla umsýslu umsókna, umsækjenda og auglýstra starfa inni á Job.is. Þjónustan gerir þér kleift að halda utan um umsóknarferlið á auðveldan og skilvirkan hátt. Hægt er að flokka umsóknir og umsækjendur eftir mikilvægum þáttum sem auðvelda alla úrvinnslu og endanlegt val á umsækjendum. Þú sparar fyrirtækinu tíma og peninga með Job-Pro.

Í stað þess að fá allar umsóknir sendar óflokkaðar með tölvupósti beint til fyrirtækis, þá býður Job-Pro upp á margvíslega flokkunarmöguleika umsókna sem og staðlaðar svaranir á fyrirspurnum og umsóknum.  Job-Pro er nokkurs konar starfsmannastjóri sem auðveldar þér ráðningarferlið, sem oft á tíðum getur verið mjög tímafrekt og dýrt.

Áskrift að Job-Pro getur verið mánaðarleg eða árleg. Þjónustan inniheldur m.a.:
- flokkun á umsóknum, umsækjendum og auglýstum störfum
- flokkun umsækjenda inniheldur m.a. menntun, aldur, kyn og starfsreynslu
- flokkun umsókna eftir: Óyfirfarið, líkleg, skoða nánar og hafnað.
- möguleiki á að opna fyrir fyrirspurnir umsækjenda
- samskipti við alla umsækjendur sem og útvalda eftir flokkunaratriðum
- sjálfvirk svörun til umsækjenda varðandi móttöku, stöðu og afgreiðslu umsókna

Það leikur enginn vafi á því að Job-Pro felst gríðarlegur vinnusparnaður og er þjónustan frábær lausn með óteljandi möguleika á úrvinnslu umsókna. Kauptu áskrift að Job-Pro hér eða hafðu samband við okkur á Job.is í síma 5523335 eða í gegnum tölvupóst job@job.is. Skrá fyrirtæki á Job.is

- Hvað er sérsíðan?
Hvert skráð fyrirtæki inni á Job.is fær sína eigin síðu en þar er að finna allar nauðsynlegar upplýsingar um fyrirtækið. Segja má að sérsíða fyrirtækis þíns myndist strax við skráningu því margar þær upplýsingar sem koma fram þar birtast á sérsíðu fyrirtækisins.

Þú getur auðveldlega breytt upplýsingum eða bætt við undir liðnum “Stillingar”. Á sérsíðunni birtast einnig öll auglýst störf sem fyrirtæki þitt er með í boði. Þess vegna geta einstaklingar einfaldega leitað fyrirtækið þitt uppi á Job.is og séð hvaða störf eru í boði hverju sinni. Skrá fyrirtæki á Job.is.
 
- Hvað er fyrirtækjasvæðið?
Hvert skráð fyrirtæki inni á Job.is fær sitt eigið fyrirtækjasvæði en inni á því svæði eru óendanlegir möguleikar til ýmissa aðgerða. Eftir skráningu er auðveldlega hægt að breyta upplýsingum eða bæta nýjum við undir “Stillingar”. Í örfáum þrepum getur þú sett inn starfsauglýsingu og birtist hún inni á Job.is um leið og við höfum staðfest hana. Hægt er að kaupa aðgang að þjónustunni Job-Pro en sú þjónusta auðveldar fyrirtæki þínu alla umsýslu með umsóknir. Á fyrirtækjasvæðinu er hægt að sjá yfirlit yfir auglýsingar í birtingu sem og áður birtar auglýsingar. Einnig er hægt að sjá yfirlit yfir reikninga og greiðslur. Skrá fyrirtæki á Job.is.



Nettengsl ehf. simi (+354) 552 3335 job@job.is