job.is

Fréttir

Alþjóðavinnumálastofnunin og heimskreppan

Ennfremur segir að í því endurreisnar starfi sem framundan sé verði að tryggja fjármálakerfið styðji, en grafi ekki undan, öryggi fólks. Mikilvægi hins opinbera velferðakerfis kemur glöggt í ljós þegar einkareknir sjóðir og stofnanir hrynji. Bæta þurfi regluverkið sem eigi að setja  peningamörkuðum skorður og auka eftirlit á fjármálamörkuðum þar sem hið innra eftirlit á fjármálamörkuðum hafi brugðist. Hann segir einnig að markaðir án siðferðis séu eyðileggjandi og hættulegir. Það þarf að tryggja sanngjarna hlutdeild almennings og vinnandi fólks í þeim auðæfum sem sköpuð eru með þeirra vinnuframlagi.

Ef stefnumiðið er alltaf aukið frelsi verður frelsið klisja sem að missir merkingu sína, eins og nú hefur gerst þegar frelsið hefur snúist upp í andstæðu sína. Hér er um pólitískt úrlausnarefni að ræða þar sem tryggja þarf jafnvægi í samspili ríkisins, markaðarins, samfélagsins og einstaklinganna innan þess. Hlutverk markaðarins hefur verið ofmetið, hlutverk ríkisins vanmetið, og ekki hefur verið hlustað á lýðræðislegar kröfur í samfélögum um félagslegt réttlæti. Ennfremur segir hann  að þörfum einstaklingsins, fjölskyldunnar og samfélags til raunverulegra lífsgæða hafi verið ófullnægt í alheimsvæðingunni eins og hún hefur þróast undanfarna áratugi.

 * Sustainable Recovery and Shaping a Fair Globalization





Nettengsl ehf. simi (+354) 552 3335 job@job.is