Leikskólakennari óskast til starfa í haust við leikskólanum Stakkaborg. Stakkaborg er 3ja deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á flæði og leikinn. Áætlað er að stækka leikskólann í haust og bæta við tveimur deildum við leikskólann.
Við leggjum áherslu á að leikurinn er okkar kennsluaðferð og gefum gott rými í leik barnanna. Starfið er laust frá byrjun ágúst en um er að ræða 100% starf.
Við erum öflugur hópur sem vinnur með bestu börn borgarinnar og erum alltaf að takast á við eitthvað nýtt og skemmtilegt. Hver dagur er ævintýri og við erum alltaf að læra eitthvað nýtt. Markvisst er unnið með hreyfingu og flæði milli deilda. Einkunnarorð leikskólans eru gleði, hreyfing og vinátta. Innan leikskólans vinnur öflugt starfsfólk sem leggur áherslu á að öllum börnum líði vel í leikskólanum. Við erum með alla deildarstjóra með kennsluréttindi og viljum fjölga í hópi leikskólakennara við skólann. Við erum dugleg að fara í leiki, nýta útikennslu og það sem umhverfið okkar býður uppá. Næsta vetur munum við leggja áherslu á styrkleika starfsmanna og nýta þá til að gera gott starf enn öflugra við skólann.
Leikskólinn Stakkaborg hefur tvisvar sinnum fengið verðlaun sem einn af Fyrirmyndarstarfsstöðum Reykjavíkurborgar en það er valið út frá viðhorfskönnun starfsmanna. Við höfum einnig fengið Hvatningarverðlaun vegna sérkennslu Stakkaborgar. Hér er því flottur starfsmannahópur sem leggur áherslu á að bæta enn frekar leikskólann með fagmennsku og metnað að leiðarljósi.
Starfsmannavelta er lítil og starfsmenn fá tækifæri til að vaxa í starfi út frá sínum styrkleika og áhugasviðum. Við leggjum ríka áherslu á að allir starfsmenn fái undirbúningstíma og erum með 36 stunda vinnuviku.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hæfniskröfur
Fríðindi
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Upplýsingar um starfið gefur Jónína Einarsdóttir leikskólastjóri í síma 411-3151 eða í tölvupósti jonina.einarsdottir@reykjavik.is
Tagged as: atvinna í boði, Draumastarfið, gefandi starf, Grunnskóli, reykjavikurborg
Miðborg er 5 deilda leikskóli í tveimur húsum í miðbænum. Við Lindargötu 26 og Njálsgötu 70. Síðar í haust mun...
Apply For This JobSérfræðingur í starfsþróun Hefur þú brennandi áhuga á að hlúa að hæfileikum og stuðla að vexti einstaklinga? Íslandshótel leita að...
Apply For This JobÆgisborg er fjögurra deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á að skapa hlýlegt lærdómssamfélag barna og fullorðinna. Helstu áherslur...
Apply For This JobLeikskólakennarar óskast til starfa við leikskólann Sæborg, Starhaga 11, 107 Reykjavík. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa, er leitað eftir...
Apply For This JobLangholt er níu deilda leikskóli við Sólheima í Reykjavík og er starfræktur í þremur byggingum. Gróið umhverfi, nálægð við Laugardalinn...
Apply For This JobSæmundarskóli óskar eftir kennara á miðstigi. Einkunnarorð Sæmundarskóla eru gleði, virðing, samvinna. Þau gefa tóninn fyrir skólabraginn og eru leiðarljós...
Apply For This Job