Viltu vinna í gefandi og spennandi vinnu í hjarta miðbæjar Reykjavíkur? Þá er leikskólinn Miðborg staður fyrir þig. Við óskum eftir jákvæðum, drífandi og samviskusömum einstakling til að vinna að uppeldi og menntun barnanna á leikskólanum í sumar. Dagar í Miðborg eru mjög fjölbreyttir og bjóða upp á úti og inniveru í frábærum félagsskap.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð og sé 18 ára eða eldri.
Leikskólinn Miðborg er 5 deilda leikskóli í tveimur starfstöðvum í 101 Reykjavík, við Njálsgötu 70 og Lindargötu 26, á báðum stöðum er blandaður aldur. Störf geta hafist um miðjan Maí eða eftir samkomulagi og til lok ágúst, sumarlokun leikskólans hefst 10.júlí og lýkur 8.ágúst.
Starfið í leikskólanum Miðborg er fjölbreytt og skemmtilegt og enginn dagur er eins en á hverjum degi getum við sameinast um að leggja dýrmætan grunn að þekkingu og þroska barna. Megin áherslur leikskólans eru á leikinn sem helsta námsleið barnsins, flæði þar sem barnið velur sér viðfangsefnið og á málörvun í daglegustarfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
Nánari upplýsingar um starfið veita leikskólastjórarnir Tinna (s:7818401) og Ösp (s:6984507) eða á midborg@reykjavik.is
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf, eða KÍ ef kennaramenntaður einstaklingur sækir um starfið.
Tagged as: atvinna í boði, Draumastarfið, gefandi starf, reykjavikurborg, sumarstarf
Leikskólakennarar óskast til starfa við leikskólann Sæborg, Starhaga 11, 107 Reykjavík. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa, er leitað eftir...
Apply For This JobLaugarnesskóli er grunnskóli fyrir börn í 1.-6. bekk og einkunnarorð skólans eru lífsgleði, nám, samvinna, kærleikur, ósk. Í Laugarnesskóla hafa...
Apply For This JobNorðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 600 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í...
Apply For This JobMiðborg er 5 deilda leikskóli í tveimur húsum í miðbænum. Við Lindargötu 26 og Njálsgötu 70. Síðar í haust mun...
Apply For This JobSæmundarskóli óskar eftir kennara á miðstigi. Einkunnarorð Sæmundarskóla eru gleði, virðing, samvinna. Þau gefa tóninn fyrir skólabraginn og eru leiðarljós...
Apply For This JobSérfræðingur í starfsþróun Hefur þú brennandi áhuga á að hlúa að hæfileikum og stuðla að vexti einstaklinga? Íslandshótel leita að...
Apply For This Job