Okkur vantar framúrskarandi LEIKSKÓLAKENNARA til starfa í stjórnendateymið í nýja og stærri Brákarborg. Leikskólinn stækkar í ágúst og tekur nýtt húsnæði yfir sem er við Kleppsveg 150-152 í 104 Reykjavík. Við leggjum áherslu á sjálfstæði barna og starfsfólks og vinnum með jákvæðan aga þar sem LAUSNAHRINGURINN er okkar aðal verkfæri. Unnið er eftir hugmyndafræði Caroline Pratt með einingakubba og John Dewey með áherslu á að læra af reynslunni.
Einkunnarorðin okkar eru: AGI – VIRÐING – UMHYGGJA<br>Við erum Regnbogavottaður skóli og fögnum fjölbreytileikanum í öllum sínum myndum.
Verkefni deildarstjóra er að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra, þ.m.t.:
Upplýsingar um starfið veita Sólrún Óskarsdóttir, leikskólastjóri og Sigurbaldur P. Frímannsson, aðstoðarleikskólastjóri í síma 411-3120 eða á netfangið brakarborg@rvkskolar.is.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Staðan er laus 14. ágúst eða eftir samkomulagi og um er að ræða fullt starf.
Tagged as: atvinna í boði, Deildarstjóri, Draumastarfið, leikskóli, reykjavikurborg