Nú fjölgum við rýmum á HSS!
Vegna mikils skorts á hjúkrunarrýmum fjölgum við rýmum sem tímabundið úrræði til að mæta þessum vanda.
Framundan er mikil uppbygging á HSS og leitum við að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum til að slást í okkar frábæra hóp og taka þátt í þessu spennandi verkefni með okkur. Gert er ráð fyrir að rýmin verði tilbúin í byrjun næsta árs.
Við óskum eftir að ráða starfsmenn í aðhlynningu. Unnið er í vaktavinnu, starfshlutfall er samkomulag, æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun árs 2023. Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt.
Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og hér ríkir góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Starf í aðhlynningu er bæði fjölbreytt og krefjandi. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu.
Leiðarljós HSS í þjónustu og starfi er umhyggja, fagmennska og virðing.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Starfsmannafélag Suðurnesja hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað um leið og ráðið hefur verið í starfið. Umsókn gildir í 6 mánuði.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 30.000 manns.
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.01.2023
Alma María Rögnvaldsdóttir
–
[email protected]
Stjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfSérnámsstöður í endurhæfingarlækningum – Sérnámsstöður lækna á Landspítala og Reykjalundi Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður í hlutasérnámi til tveggja ára...
Sækja um starfSérfræðingur í heimilislækningum – Heilsugæslan Mosfellsumdæmi Heilsugæslan Mosfellsumdæmi leitar að sérfræðingi í heimilislækningum í ótímabundið starf. Starfshlutfall er 100% eða...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfYfirlæknir við lyflækningadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, Akranesi. Staða yfirlæknis við lyflækningadeild Heilbrigðisstofnunar Vesturlands, Akranesi, er laus til umsóknar. Staðan veitist frá...
Sækja um starfSjúkraliði- Heimahjúkrun HH Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins leitar eftir sjúkraliða í vaktavinnu. Um er að ræða ótímabundið starf á morgun-, kvöld-...
Sækja um starf