Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts í tómstunda- og félagsmálafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Í starfinu felst kennsla, rannsóknir og þátttaka í áframhaldandi mótun náms í tómstunda- og félagsmálafræði. Sérstaklega er leitað eftir fólki með menntun, reynslu og sérþekkingu á einu eða fleirum af eftirfarandi sviðum: Tómstundir barna og unglinga, inngildandi starfshættir og leiðtogafærni, einelti, forvarnir og inngrip, jafnréttismál, félagslegt réttlæti og jaðarsettir hópar.
Kennsla á grunnstigi og leiðsögn með grunn- og meistaranemum
Þátttaka í rannsóknum á sviði tómstunda- og félagsmálafræða
Að vera leiðandi og skapandi á sviði rannsókna sem tengjast fræðilegum grunni tómstundastarfs og hagnýtingu slíkrar þekkingar
Að byggja upp samstarf við starfsvettvang, s.s. fagfólk og leiðandi aðila sem starfa á sviði skipulagðs tómstunda- og æskulýðsstarfs, grasrótarhreyfinga, jafnréttis og jaðarsettra hópa og skyldrar starfsemi
Meistarapróf á sviði tómstunda- og félagsmálafræði, mennta- og/eða félagsvísinda
Reynsla af störfum á vettvangi tómstunda- og æskulýðsstarfs
Menntun á sviði háskólakennslu og/eða reynsla af kennslu á háskólastigi er æskileg
Reynsla af vinnu við rannsóknir á fræðasviðinu er kostur
Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Áhersla er lögð á að sá sem starfið hlýtur hafi skýra framtíðarsýn um hlutverk sitt á sviðinu. Horft verður til þess að umsækjendur falli sem best að þörfum og aðstæðum námsbrautar í tómstunda- og félagsmálafræðiog Menntavísindasviðs.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júlí 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá um nám og störf
Skýrsla um kennslureynslu umsækjanda og sýn hans á kennslu og kennsluþróun
Yfirlit yfir rannsóknir og ritsmíðar (ritaskrá) og fyrirhugaðar rannsóknir
Afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, símanúmer og netfang
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.02.2026
Fá tilkynningu um svipuð störf
Lektor í fötlunarfræði Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors í fötlunarfræði við Deild menntunar og margbreytileika á Menntavísindasviði...
Sækja um þetta starfLektor í stafrænum kennsluháttum Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors í stafrænum kennsluháttum við Deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í Marie Sklodowska-Curie Actions verkefni – Vistferlisgreiningar og landupplýsingakerfi Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við Matvæla-...
Sækja um þetta starfLektor í kennslufræði læsis og lestrarkennslu Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors í kennslufræði læsis með áherslu á...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í Marie Sklodowska-Curie Actions verkefni við að þróa aðferðir fyrir vistferilsáhrifamat tengt vatnsnotkun Hlusta Laust er til umsóknar fullt...
Sækja um þetta starfLektor í taugasjúkdómafræði Hlusta Laust er til umsóknar 50% starf lektors í taugasjúkdómafræðum á fræðasviði taugasjúkdóma við Læknadeild Háskóla Íslands....
Sækja um þetta starf