Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts í uppeldis- og menntunarfræði við Deild menntunar og margbreytileika á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Starfið er tímabundið til tveggja ára. Meginviðfangsefni eru kennsla og rannsóknir í uppeldis- og menntunarfræði, meðal annars í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf.
Kennsla á grunn- og meistarastigi í uppeldis og menntunarfræði, m.a. á námsleiðinni foreldafræðsla og uppeldisráðgjöf.
Leiðsögn grunnnema og framhaldsnema.
Rannsóknir á sviði uppeldis- og menntunarfræði.
Samstarf við fræðafólk innan námsbrautarinnar, í Deild menntunar og margbreytileika og á Menntavísindasviði.
Samstarf á starfsvettvangi uppeldis- og menntunarfræðinga.
BA og MA-próf í uppeldis- og menntunarfræði eða skyldum greinum.
Doktorspróf er kostur.
Reynsla af kennslu á háskólastigi.
Framhaldsnám í foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf er kostur.
Reynsla af öflun styrkja og sjálfstæðum rannsóknum á fræðasviðinu er kostur.
Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Staðfest afrit af prófskírteinum
Greinagerð þar sem áhuga fyrir starfinu er lýst og fjallað um hvað umsækjandi getur lagt af mörkum til þess
Upplýsingar um umsagnaraðila
Við ráðningu verður miðað við að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Deildar menntunar og margbreytileika og sviðsins í heild.
Ráðið verður í starfið til tveggja ára. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júlí 2025.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Á Menntavísindasviði fer fram rannsóknatengt starfsnám fyrir kennara á leik-, grunn- og framhalds- og háskólastigi, uppeldis- og menntunarfræðinga, íþrótta- og heilsufræðinga, tómstunda- og félagsmálafræðinga og þroskaþjálfa. Lögð er áhersla á rannsóknir og þróunarstarf sem unnið er í samstarfi við starfsvettvang.
Háskóli Íslands er stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun Íslands. Háskólinn veitir nemendum víðtæka menntun á öllum helstu fræðasviðum og þjónar stofnunum, fyrirtækjum og stjórnvöldum í þágu almannaheilla. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.05.2025
Ólafur Páll Jónsson, opj@hi.is
Lára Rún Sigurvinsdóttir, lararun@hi.is
Sími: 5255905
Fá tilkynningu um svipuð störf
Aðjúnkt í hagnýtri atferlisgreiningu við þverfræðilega námsleið á Menntavísindasviði og Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi á sviði tölfræðilegrar og tæknilegrar jarðskjálftafræði Hlusta Auglýst er laust til umsóknar starf doktorsnema á sviði tölfræðilegrar (statistical seismology)...
Sækja um þetta starf