HSA óskar eftir að ráða aðstoðarmann við hjúkrun á hjúkrunardeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 80% eða eftir samkomulagi. Unnið er á vöktum og gott ef viðkomandi gæti hafið störf sem fyrst.
Aðhlynning og tilfallandi störf á hjúkrunardeild. Umdæmissjúkrahús Austurlands sinnir bráðaþjónustu fyrir allt Austurland. Þetta er gott tækifæri fyrir þá sem vilja starfa og öðlast fjölbreytta reynslu tengdri hjúkrun.
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er -80%
Umsóknarfrestur er til og með 06.02.2023
Anna Sigríður Þórðardóttir
–
[email protected]
Borghildur F. Kristjánsdóttir
–
[email protected]
Hjúkrunarnemar á 1.- 4. ári – Hlutastörf með námi á smitsjúkdómadeild Langar þig í hvetjandi og lærdómsríkt starf þar sem...
Sækja um starfSjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi á smitsjúkdómadeild Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi óskast til starfa á smitsjúkdómadeild A7 í Fossvogi....
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfViltu vera á skrá? Hjúkrunarfræðingur/ljósmóðir Hér geta hjúkrunarfræðingar og ljósmæður með starfsleyfi skráð almenna starfsumsókn. Almennum starfsumsóknum er ekki svarað...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfSálfræðingur Geðheilsuteymi HH suður Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að sálfræðingi við Geðheilsuteymi HH suður sem er þverfaglegt meðferðarteymi. Teymið er til...
Sækja um starf