Miðborg er 5 deili leikskóli í tveimur húsum í miðbænum. Við Lindargötu 26 og Njálsgötu 70. Í október mun þriðja húsið opna við Barónsstíg 34 og verður Miðborg þá 10 deilda leikskóli með 161 barni.
Við leitum að deildarstjóra sem er tilbúin að taka þátt í spennandi þróunarverkefni en Miðborg er hluti að Nurture innleiðingaverkefni Reykjavíkurborgar. https://blogs.glowscotland.org.uk/glowblogs/glasgowpsychologicalservice/nurture/Mikilvægt er að deildarstjórinn sé með opið hugarfar og hafi áhuga eða reynslu að því að vinna eftir hugmyndafræði sálfræðingsins Mihaly Csikszentmihalyi um flæði.
Nálægðin við miðbæinn ýtir undir fjölmenningarlegt, fjölbreytt og skemmtilegt starf. Mikil gróska er í starfinu og spennandi tímar fram undan. Við leggjum áherslu á sjálfssprottinn leik þar sem hugmyndafræðin um flæði er í forgrunni. Að mynda góð tengsl við börn og foreldra skiptir okkur miklu máli svo öll getum við blómstrað í öruggu umhverfi.
Ráðið er í starfið strax eða eftir samkomulagi.
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Nánari upplýsingar um starfið veita leikskólastjórarnir Tinna Sigurðardóttir og Ösp Jónsdóttir á midborg@rvkskolar.is.
Starfamerkingar: Gefandi starf, Leikskóli, Reykjavíkurborg, Starf í boði
Fá tilkynningu um svipuð störf
Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur. Endurskipulagning starfsins stendur til þar sem starf í anda Reggio Emilia verður í...
Sækja um þetta starf