Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar starf doktorsnema í eðlisefnafræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands. Starfið er á sviði þéttiefnisrafhlaðna (e. solid-state batteries) og er styrkt til þriggja ára af Rannsóknasjóði. Þróun fastarafhlaðna sem hægt er að framleiða í stórum stíl er eitt af helstu markmiðum rafhlöðuiðnaðarins á þessari öld og krefst nýstárlegrar grunnrannsóknar.
Þéttefnisrafhlöður (solid-state batteries) bjóða upp á aukna orkugeymd, styttri hleðslutíma, lengri endingartíma og aukið öryggi þar sem notast er við fast efni sem jónaleiðara í stað eldfims vökva í hefðbundnum rafhlöðum. Verkefnið einblínir á LLZO þunnhúðir en kristallað LLZO hefur háa jónaleiðni og góðanrafefnafræðilegan stöðugleika en er framleitt við hátt hitastig sem hindrar samþættingu þess inn í rafhlöður. Í þessu verkefni þróum við nýja tegund myndlauss LLZO jónaleiðara sem hugsanlega lausn við þessum áskorunum og leggjum grunn að sjálfbærum, háafkasta þéttefnisrafhlöðum sem er hægt að framleiða við lægra hitastig. Verkefnið sameinar tilrauna- og reiknifræðilegar aðferðir til að rannsaka og fínstilla staðbundinn strúktúr myndlauss LLZO í átt að praktískri jónaleiðni. Doktorsneminn mun kynnast ræktun þunnra húða sem verða greindar með ýmsum aðferðum, þar á meðal með tvinnviðnámsmælingum (EIS), rafeindasmásjá (SEM), röntgengreiningu (XRD) sem og ýmsum litrófsmælingum. Auk þess mun doktorsneminn þróa nýja aðferð til mælinga á jónaleiðni með rafefnasmásjá (SECM) sem getur almennt flýtt fyrir þróun þéttefnisrafhlaða.
Leiðbeinendur verða Dr. Anna B Gunnarsdóttir, nýdoktor við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, og Dr. Friðrik Magnus, vísindamaður við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands. Vinnan er hluti af verkefninu Staðbundin bygging og jónaleiðni í myndlausum garnet-efnum fyrir þéttefnisrafhlöður. Verkefnið fjármagnar að auki starf doktorsnema við fræðilega reikninga í samstarfi við rannsóknahóp Dr. Hannesar Jónssonar, prófessors í eðlisefnafæði. Rannsóknahópurinn hefur aðstöðu í Örtæknikjarna Háskóla Íslands. Valdir umsækjendur munu vinna í lifandi og fjölbreyttu rannsóknarumhverfi með víðtæku alþjóðlegu samstarfi við bæði tilrauna- og fræðilega hópa. Einstaklingar af öllum bakgrunni eru hvattir til að sækja um. Stefnt er að því að byggja upp fjölbreyttan hóp þar sem öll fái notið sín. Ef þú hefur áhuga á sjálfbærri efnafræði og þróun nýrrar rafhlöðutækni, gæti þetta tækifæri verið fyrir þig.
MSc gráða í efnafræði, eðlisfræði, efnisfræði eða skyldum greinum.
Sjálfstæð vinnubrögð og færni í mannlegum samskiptum.
Góð enskukunnátta, bæði í rituðu og töluðu máli.
Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám við deildina og að umsóknin sé samþykkt af deild, stundi umsækjandi ekki doktorsnám þar nú þegar.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Umsókn skal innihalda:
Kynningarbréf (hámark ein blaðsíða) þar sem kemur fram hvað vekur áhuga umsækjanda á verkefninu, vísindalegur bakgrunnur og ástæður þess að viðkomandi vill vinna að doktorsverkefni.
Afrit af prófskírteinum (grunnnám og meistaranám).
Ferilskrá (hámark þrjár blaðsíður).
Upplýsingar um tvo meðmælendur, tengsl þeirra við umsækjanda og hvernig má hafa samband við þá.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands er stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun. Háskóli Íslands er gróskumikið þekkingarsamfélag og er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Akademískt frelsi, fagmennska og jafnrétti eru gildi skólans og er mikið lagt upp úr sveigjanleika og þátttöku starfsmanna í uppbygginu náms og rannsókna við skólann.
Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa um 400 manns við rannsóknir og kennslu á sviði verkfræði og náttúruvísinda. Starfsumhverfið er alþjóðlegt enda eykst sífellt hlutfall erlendra starfsmanna og nemenda við sviðið, en fjórðungur bæði starfsmanna og framhaldsnema eru erlendir. Á sviðinu eru um 2000 nemendur, þar af um fjórðungurinn framhaldsnemar. Verkfræði- og náttúruvísindasvið stærir sig af fjölbreytileika og umbótasinnuðu umhverfi þar sem þekkingaröflun og miðlun er í fyrirrúmi.
Starfshlutfall er 70-100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2025
Anna Bergljót Gunnarsdóttir, annabg@hi.is
Friðrik Magnus, fridrikm@hi.is
Fá tilkynningu um svipuð störf
Lektor við Námsbraut í sjúkraþjálfun – Heilbrigðisvísindasvið – Háskóli Íslands Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors við Námsbraut...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi á sviði tölfræðilegrar og tæknilegrar jarðskjálftafræði Hlusta Auglýst er laust til umsóknar starf doktorsnema á sviði tölfræðilegrar (statistical seismology)...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í landfræði Hlusta Laust er til umsóknar starf doktorsnema í landfræði við Líf- og umhverfisvísindadeild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í eðlisfræði Hlusta Laust er til umsóknar starf doktorsnema í eðlisfræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands. Starfið er...
Sækja um þetta starfAðjúnkt í íþróttafræði. Háskóli Íslands, Menntavísindasvið Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts á sviði íþrótta- og heilsufræði við...
Sækja um þetta starfÍsafjarðarbær er sveitarfélag í sókn, þar sem einstök lífsgæði og fjölskylduvænt samfélag fara hönd í hönd. Í Ísafjarðarbæ eru öflugir...
Sækja um þetta starf