Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar 37% starf dósents í lyflæknisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands.
Forsenda fyrir ráðningu í starf dósents er að umsækjandi starfi við Sjúkrahúsið á Akureyri og hafi þar aðstöðu til að sinna klínískri kennslu læknanema, með vísun í samstarfssamning milli háskólans og Sjúkrahússins á Akureyri um kennslu og rannsóknir í heilbrigðisvísindagreinum. Viðkomandi mun uppfylla kennsluskyldu sína innan fræðasviðs lyflæknisfræði við Læknadeild HÍ, þ.m.t. er sú klíníska kennsla sem fram fer við SAk. Þá stundar dósentinn rannsóknir í sinni fræðigrein á fræðasviðinu.
Doktorspróf á fræðasviðinu eða þekking og reynsla í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar.
Sérfræðileyfi í lyflæknisfræði og klínísk reynsla af lyflæknisfræði.
Rannsóknavirkni á fræðasviðinu, sjálfstæði og frumkvæði í rannsóknum.
Reynsla af háskólakennslu, fræðilegri og klínískri.
Reynsla af leiðsögn til æðri háskólagráðu er æskileg.
Stjórnunarreynsla er æskileg.
Reynsla af öflun styrkja til rannsóknarstarfa er kostur.
Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Læknadeildar.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Gert er ráð fyrir að ofangreint starf verði veitt sem fyrst, eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Innan Háskólans eru fimm fræðasvið og deildir skólans eru 25 talsins. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum. Jafnframt er Háskóli Íslands öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðlega vísu og hafa vísindamenn Háskólans hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir vísindastörf sín.
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands er í fararbroddi á sviði heilbrigðismála á Íslandi og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu íslenska heilbrigðiskerfisins með menntun heilbrigðisstarfsmanna. Helstu sérfræðingar þjóðarinnar í heilbrigðisvísindum koma að kennslu og rannsóknum á sviðinu.
Starfshlutfall er 37%
Umsóknarfrestur er til og með 29.11.2023
Einar Stefán Björnsson, einarsb@landspitali.is
Sími: 8253747
Þórarinn Guðjónsson, tgudjons@hi.is
Sími: 5254879
Kennari í íslensku við Kvennaskólann í Reykjavík Kvennaskólinn í Reykjavík óskar eftir að ráða kennara í íslensku á vorönn 2024....
Sækja um starfLektor í iðnaðarlíftækni Laust er til umsóknar fullt starf lektors í iðnaðarlíftækni við Háskóla Íslands.Iðnaðarlíftækni er þverfræðileg meistaranámsleið innan Háskóla...
Sækja um starfFjölbrautaskóli Norðurlands vestra auglýsir eftir kennara í sérgreinum rafiðna Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra óskar eftir að ráða: Kennara í sérgreinum rafiðna...
Sækja um starfSérkennari á sérnámsbraut (starfsbraut) Fjölbrautaskólinn í Garðabæ óskar eftir að ráða sérkennara á sérnámsbraut ( starfsbraut ) frá 1. ágúst...
Sækja um starfFramhaldsskólakennari í fata- textíl- og hönnunargreinum Fjölbrautaskólinn í Garðabæ óskar eftir að ráða kennara (sbr. lög nr. 95/2019) í fata-...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starf