Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til setningar embætti dómara við Landsrétt. Um er að ræða setningu til og með 28. febrúar 2029 vegna leyfis skipaðs landsréttardómara. Sett verður í embættið frá og með 21. ágúst 2023 eða hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti hefur lokið störfum. Um launakjör fer samkvæmt lögum um dómstóla nr. 50/2016.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 21. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 970/2020, um störf dómnefndar sem fjallar um hæfni umsækjenda um dómaraembætti, er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum,
3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) almenna og sérstaka starfshæfni, 9) andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum, 10) tvo fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn, sem og símanúmer þeirra og netföng, sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skiptir fyrir störf landsréttardómara.
Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) ferilskrá, 2) afrit af prófskírteinum, 3) afrit dóma í munnlegum fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 4) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 5) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 6) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjenda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 7) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem landsréttardómari.
Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 8. ágúst næstkomandi. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu á minnislykli eða með rafrænum hætti á netfangið [email protected]
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Dómsmálaráðuneytinu,
21. júlí 2023.