Menntaskólinn í Reykjavík er hefðbundinn bóknámsskóli með bekkjarkerfi. Skólinn býður upp á nám á tveimur námsbrautum til stúdentsprófs, málabraut og náttúrufræðibraut sem greinast í 8 deildir: Málabraut (fornmáladeild I, fornmáladeild II, nýmáladeild I og nýmáladeild II) og náttúrufræðibraut (eðlisfræðideild I, eðlisfræðideild II, náttúrufræðideild I og náttúrufræðideild II).
Við skólann starfa 82 starfsmenn og er fjöldi nemenda um 680.
Rektor veitir skólanum forstöðu, stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Þá ber rektor ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt auk þess að hafa frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans sbr. 2. mgr. 6. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008. Að auki gegnir rektor mikilvægu hlutverki í mótun skólastarfs á grundvelli laga og aðalnámskrár framhaldsskóla og er mikilvægt að umsækjendur hafi skýra framtíðarsýn hvað þetta varðar.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Mennta- og barnamálaráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum. Skipað er í embættið frá 1. ágúst 2022.
Um ráðningu og launakjör skólameistara fer eftir 39. gr. a í lögum nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og 2. mgr. 12. gr. laga nr. 95/2019 um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
Með umsókn skal fylgja 1) ítarleg starfsferilskrá með upplýsingum um núverandi starf umsækjanda ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf, 2) kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur samkvæmt starfsauglýsingu og 3) greinargerð um framtíðarsýn fyrir Menntaskólann í Reykjavík út frá faglegum og rekstrarlegum áherslum í skólastarfi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Björg Pétursdóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu framhaldsskóla og -fræðslu í gegnum netfangið [email protected]
Við skipun í embætti hjá mennta- og barnamálaráðuneyti er tekið mið af jafnréttisáætlun ráðuneytisins.
Athygli er vakin á því að samkvæmt 7. gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 er ráðuneytinu skylt að veita upplýsingar um nöfn og starfsheiti umsækjenda þegar umsóknarfrestur er liðinn. Nöfn allra umsækjenda ásamt starfsheitum verða birt á vef ráðuneytisins. og verða umsóknir þar sem óskað er nafnleyndar ekki teknar til greina.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.04.2022
Björg Pétursdóttir, Skrifstofustjóri
–
[email protected]
–
545 9500