Hafrannsóknastofnun leitar eftir sérfræðingi í fiskifræði.
Hafrannsóknastofnunin óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa við rannsóknir á sviði fiskifræði. Starfið snýr einkum að gagnarýni, rannsóknum á lífssögu tegunda og mati á stofnstærð hryggleysingja. Leitað er að einstakling sem hefur góða færni til að vinna í þverfaglegri teymisvinnu. Umsækjendur þurfa að hafa reynslu af rannsóknum og birtingu niðurstaðna.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra náttúrufræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja:
Sótt er um starfið á Starfatorgi og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina og áskilur stofnunin sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.
Gerð er krafa um að umsækjendur hafi hreint sakavottorð.
Við ráðningu í störf hjá Hafrannsóknastofnun er tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um.
Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði hafs- og vatnarannsókna og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi sjálfbæra nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Hún heyrir undir matvælaráðuneytið. Stofnunin rekur, auk aðalstöðvar í Hafnarfirði, starfsstöðvar vítt og breitt um landið, tilraunaeldisstöð, tvö rannsóknaskip og hjá stofnuninni starfa að jafnaði um 190 manns í fjölbreyttum störfum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.09.2023
Jónas Páll Jónasson, sviðsstjóri botnsjávarsviðs
–
[email protected]
–
695-1750
Sigríður Elva Ármannsdóttir, sérfræðingur á mannauðssviði
–
[email protected]
–
834-2888
Sálfræðingur barna og unglinga – Heilsugæslan Hlíðum Laust er til umsóknar tímabundið starf sálfræðings fyrir börn og unglinga við Heilsugæsluna...
Sækja um starfSérfræðingur í flugrekstrar- og skírteinadeild Samgöngustofa auglýsir lausa til umsóknar stöðu sérfræðings í flugrekstrar- og skírteinadeild flugsviðs hjá Samgöngustofu. Helstu...
Sækja um starfViltu taka þátt í grænni framtíð? Skógræktin leitar að öflugu starfsfólki til að vinna að uppbyggingu skógarauðlindar á Íslandi, vernd...
Sækja um starfTaugalæknir – Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir laust til umsóknar ótímabundið 30-50 % starf sérfræðings í taugalækningum við Geðheilsuteymi...
Sækja um starfTeymisstjóri vöruhúsa gagna hjá embætti landlæknis Embætti landlæknis leitar að jákvæðum og lausnamiðuðum sérfræðingi í uppbyggingu á vöruhúsum gagna á...
Sækja um starfSálfræðingur barna og unglinga – Heilsugæslan Hlíðum Laust er til umsóknar tímabundið starf sálfræðings fyrir börn og unglinga við Heilsugæsluna...
Sækja um starf