Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar starf forseta Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Menntavísindasvið er eitt af fimm fræðasviðum háskólans og starfar forseti þess í umboði rektors. Forseti fræðasviðs er yfirmaður sviðsins, stýrir daglegri starfsemi og er akademískur leiðtogi þess og talsmaður innan háskólans og utan.
Á Menntavísindasviði starfa um 160 manns við kennslu og rannsóknir þar sem lögð er áhersla á fjölbreytta miðlun þekkingar, öflugar samræður við íslenskt samfélag og alþjóðlegt fræðasamfélag. Auk þess starfa 49 manns við stjórnsýslu og stoðþjónustu sviðsins.
Fjármál og rekstur fræðasviðs, deilda og stofnana sem undir það heyra
Stjórnun, mannauðsmál og útfærsla og framkvæmd heildarstefnu Háskóla Íslands á vettvangi fræðasviðs
Yfirumsjón með stjórnsýslu og stoðþjónustu fræðasviðsins
Tryggja gæði kennslu og uppbyggingu rannsókna og þjónustu
Stuðla að og styðja við öfluga liðsheild og faglegt samstarf
Byggja upp og efla tengsl við innlenda og erlenda samstarfsaðila
Akademískt hæfi sem nemur a.m.k. dósentshæfi eða jafngildi þess að mati hæfisnefndar
Reynsla af stjórnun, fjármálum og stefnumótun
Reynsla af alþjóðlegu háskólaumhverfi
Leiðtogahæfileikar
Metnaðarfull og skýr framtíðarsýn
Rík samskiptahæfni
Góð íslensku- og enskukunnátta, í ræðu og riti
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Ráðið verður í starfið til fimm ára. Á grundvelli laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglur sem háskólaráð hefur sett getur rektor ákveðið að framlengja ráðningu forseta fræðasviðs til fimm ára í senn. Forseti fræðasviðs er ráðinn af rektor að fenginni umsögn sérstakrar ráðgefandi hæfisnefndar.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Afrit af prófskírteinum
Greinargerð þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hver framtíðarsýn hans er varðandi starf forseta Menntavísindasviðs
Upplýsingar um umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknaháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 19.02.2026
Fá tilkynningu um svipuð störf
Sálfræðingur Hlusta Laust er til umsóknar 50% starf sálfræðings í Nemendaráðgjöf Háskóla Íslands (NHÍ). Nemendaráðgjöf heyrir undir Kennslusvið Háskóla Íslands...
Sækja um þetta starfForseti Hugvísindasviðs Hlusta Laust er til umsóknar starf forseta Hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Hugvísindasvið er eitt af fimm fræðasviðum háskólans og...
Sækja um þetta starf