Fjölbrautaskólinn í Garðabæ óskar eftir að ráða kennara (sbr. lög nr. 95/2019) í fata- textíl- og hönnunargreinum frá hausti 2023. Hugsanlegt er að það þurfi framhaldsskólakennara í meira en eitt starf.
Leitað er að vel menntuðum kennara með full réttindi til kennslu. Umsækjandi þarf að geta kennt bæði byrjendum og lengra komnum. Sérstaklega er sóst eftir kennara sem sýnir frumkvæði í starfi, góða samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Umsækjandi þarf að hafa háskólapróf á því sviði sem auglýst er eftir (sbr. lög nr. 95/2019).
Góð samskipta- og skipulagshæfni er mikilvæg ásamt áhuga á að starfa í öflugu skólasamfélagi.
Leitað er eftir kennara sem þekkir til og/eða hefur reynslu af fjölbreyttum kennsluháttum svo sem verkefnamiðuðu námi og leiðsagnarnámi.
Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum skólans.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skila rafrænt í gegnum Starfatorg ( www.starfatorg.is) með tilheyrandi fylgigögnum, s.s. leyfisbréfi, ferilskrá, prófskírteinum og öðrum upplýsingum sem umsækjanda þykir skipta máli. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum. Skólameistari mun óska eftir umboði til að kalla eftir upplýsingum úr sakaskrá áður en gengið er frá ráðningu.
Við ráðningar í störf við Fjölbrautaskólann í Garðabæ er tekið mið af jafnréttisstefnu skólans.
Starfshlutfall er -100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.05.2023
Kristinn Þorsteinsson, skólameistari
–
[email protected]
–
5201600
Snjólaug Elín Bjarnadóttir, aðstoðarskólameistari
–
[email protected]
–
5201600