Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Húsavík óskar eftir hjúkrunarfræðingum í sumarafleysingar á sjúkra-, hjúkrunarsvið, heilsugæslu og Hvamm. Ráðningartími og starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi.
Til greina kemur að ráða inn til skemmri tíma, einstaka helgar eða vikur.
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði. Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini, íslensktu hjúkrunarleyfi og náms- og starfsferilsskrá.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska – samvinna – virðing.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.02.2023
Áslaug Halldórsdóttir, Yfirhjúkrunarfræðingur
–
[email protected]
–
432 4800
Starfsfólk í aðhlynningu í sumarafleysingar á HSN Blönduósi Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Blönduósi óskar eftir starfsfólki í aðhlynningu á hjúkrunarsviði....
Sækja um starfStarfsfólk við aðhlynningu í sumarafleysingar á HSN Siglufirði Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Siglufirði óskar eftir starfsmönnum við aðhlynningu í sumarafleysingar. Ráðningartími...
Sækja um starfStarfsfólk í eldhúsi í sumarafleysingar á HSN Blönduósi Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Blönduósi óskar eftir starfsfólki í eldhús í sumarafleysingar. Helstu...
Sækja um starfMóttökuritari í sumarafleysingar á HSN Sauðárkróki Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Sauðárkróki óskar eftir móttökuritara í sumarafleysingar sumarið 2023. Helstu verkefni og...
Sækja um starfSjúkraliðar í sumarafleysingar á HSN Blönduósi Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Blönduósi óskar eftir sjúkraliðum í sumarafleysingar á hjúkrunarsviði og heilsugæslu. Ráðningartími...
Sækja um starfMóttökuritari – Djúpivogur/Breiðdalsvík – Heilsugæsla – SUMARAFLEYSING 2023 Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða móttökuritara í sumarafleysingu júlí til...
Sækja um starf