Laus er til umsóknar 80-100% staða hjúkrunarfræðings á skurðlækningadeild. Um er að ræða vaktavinnu og er staðan laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Unnið er á þrískiptum vöktum í fjölbreyttu starfumhverfi. Starfið býður upp á tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Næsti yfirmaður er Hilda Hólm Árnadóttir, forstöðuhjúkrunarfræðingur skurðlækningadeildar.
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvröðun um ráðningu hefur verið tekin.
Sjúkrahúsið veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum stöðlum sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. regnla nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.11.2022
Hilda Hólm Árnadóttir
–
[email protected]
–
463-0100
Erla Björnsdóttir
–
[email protected]
–
463-0100
Hjúkrunarfræðingar og hjúkrunarnemar óskast á Móberg hjúkrunarheimili HSU á Selfossi Hjúkrunarfræðingar og hjúkrunarnemar óskast til starfa á glænýtt hjúkrunarheimili, Móberg,...
Sækja um starfSérnámsstöður í meinafræði – Sérnámsstöður lækna á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður í hlutasérnámi til...
Sækja um starfSérfræðingur í svæfinga- og gjörgæslulækningum Laus er til umsóknar staða sérfræðings í svæfinga- og gjörgæslulækningum á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Starfshlutfall...
Sækja um starfTímabundin staða í heilsuvernd grunnskólabarna á HSN Akureyri Laus er til umsóknar 40-80% afleysingastaða skólahjúkrunarfræðings hjá HSN Akureyri. Æskilegt er...
Sækja um starfSérfræðilæknir í öldrunarlækningum Tvær stöður sérfræðilækna í öldrunarlækningum við Landspítala eru lausar til umsókna frá 1. febrúar 2023 eða eftir...
Sækja um starfLæknar í sumarafleysingar á HSN Akureyri Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Akureyri óskar eftir að ráða lækna í sumarafleysingar. Ráðningartími er frá...
Sækja um starf