Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í sumarafleysingu júlí til ágúst á heilsugæslu HSA sem sinnir Djúpavogi, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði, ásamt nærsveitum. Starfshlutfall er 70%.
Almenn móttaka á heilsugæslu og heilsuvernd. Almenn móttaka sjúklinga og þátttaka í bakvöktum utan dagvinnu.
Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði. Sérnám í heilsugæsluhjúkrun er kostur og/eða reynsla af vinnu á heilsugæslu. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Íslenskukunnátta áskilin. Ökuréttindi nauðsynleg.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 70%
Umsóknarfrestur er til og með 03.02.2023
Guðrún Pétursdóttir
–
[email protected]
Jónína Guðrún Óskarsdóttir
–
[email protected]
Heilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir tímabundið starf Iðjuþjálfa laust til umsóknar vegna leyfis Um er að ræða fullt starf iðjuþjálfa hjá Heilbrigðisstofnun...
Sækja um starfFagstjóri hjúkrunar á hjúkrunarsviði – Heilbrigðisstofnun Austurlands Leitað er eftir kraftmiklum og reyndum stjórnanda sem hefur brennandi áhuga á framþróun...
Sækja um starfAlmenn störf Hér geta almennir starfsmenn skráð almenna starfsumsókn. Almennum starfsumsóknum er ekki svarað sérstaklega. Þær hverfa úr kerfinu eftir...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfLjósmæður Heilbrigðisstofnun Vestfjarða óskar eftir að ráða ljósmæður til starfa á Ísafirði. Um er að ræða 60% – 80% starf...
Sækja um starfIðjuþjálfi í sumarafleysingar á HSN Blönduósi Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) auglýsir eftir iðjuþjálfa í sumarafleysingar. Ráðningartími og starfshlutfall samkvæmt samkomulagi. Helstu...
Sækja um starf