Heilsugæslan Efra-Breiðholti auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. mars eða eftir nánara samkomulagi. Góð aðlögun er í boði.
Á heilsugæslustöðinni eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum ásamt hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum, ljósmæðrum, sjúkraliða, hreyfistjóra, klínískum lyfjafræðingi og riturum. Heilsugæslan Efra-Breiðholti þjónar fyrst og fremst íbúum Efra-Breiðholts en öllum er frjálst að skrá sig á stöðina. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Megin starfssvið er skólaheilsugæsla í Fellaskóla (um 300 nemendur) og í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti sem er tímabundið tilraunaverkefni ásamt almennri móttöku á heilsugæslustöð. Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni. Hjúkrunarmóttakan er mjög víðtæk, allt frá símaráðgjöf til bráðaþjónustu. Móttakan sinnir fólki á öllum aldri og skiptist í opna móttöku, bókaða móttöku og símaráðgjöf. Um er að ræða skemmtilegt starf í fjölmenningarlegu samfélagi.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.01.2023
Vildís Bergþórsdóttir
–
[email protected]
–
821-2160
Læknir hjá HSN Fjallabyggð Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Fjallabyggð óskar eftir að ráða lækni til starfa. Húsnæði í boði. Læknar sem...
Sækja um starfSérfræðistarf hjá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir sérfræðingi hjá Samhæfingarstöð krabbameinsskimana til að m.a. sjá um rekstur vél- og...
Sækja um starfLjósmóðir í sumarafleysingar á HSN Sauðárkróki Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Sauðárkróki óskar eftir ljósmóður í sumarafleysingar á heilsugæslustöð. Æskilegt er að...
Sækja um starfAðhlynning Nú fjölgum við rýmum á HSS! Vegna mikils skorts á hjúkrunarrýmum fjölgum við rýmum sem tímabundið úrræði til að...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfSérfræðingur í heimilislækningum – Heilsugæslan Glæsibæ Laust er til umsóknar ótímabundið starf sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna Glæsibæ. Viðkomandi þarf...
Sækja um starf