Vilt þú verða hluti af öflugum hópi starfsmanna?
Heilsugæslan í Efra-Breiðholti auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. ágúst nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Við erum að leita að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni. Ef þú ert að leita að starfi þar sem enginn dagur er eins þá hvetjum við þig til þess að sækja um.
Megin starfssvið er skólaheilsugæsla í Fellaskóla (um 300 nemendur) ásamt almennri móttöku á heilsugæslustöð. Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.
Við erum með móttöku sem sinnir fólki á öllum aldri, sinnum bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf. Hjúkrunarfræðingar sinna einnig erindum sem eru ekki bráð s.s. sárameðferð og heilsueflandi móttöku. Um er að ræða skemmtilegt starf í fjölmenningarlegu samfélagi.
Heilsugæslan í Efra-Breiðholti leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.08.2023
Vildís Bergþórsdóttir
–
[email protected]
–
821-2160