Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 100% framtíðarstarf í fjölbreytt störf hjúkrunar, þ.á m. hjúkrunarmóttöku, skólaheilsugæslu, ung- og smábarnavernd og heilsueflandi móttöku. Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífelldri þróun. Heilsugæslan Seltjarnarnesi leggur áherslu á þverfaglegt samstarf og góða teymisvinnu. Ef þú ert að leita að starfi þar sem enginn dagur er eins þá hvetjum við þig til þess að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)
Starfssvið heilsugæsluhjúkrunar er viðtækt. HH Seltjarnarnesi og Vesturbæ er með hjúkrunarmóttöku sem sinnir fólki á öllum aldri. Þá sinna hjúkrunarfræðingar bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt að svara Heilusveruskilaboðum og einnig erindum sem ekki eru bráð s.s. ferðamannaheilsuvernd og sárameðferð ásamt heilsueflandi móttöku. Heilsueflandi móttaka felur í sér mat á heilsu skjólstæðinga og þörf þeirra á heilsueflingu.
Ung og smábarnavernd eflir heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra.
Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttinda stefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.05.2023
Emilía Petra Jóhannsdóttir
–
[email protected]
–
513-6100
Viltu vera á skrá? Sjúkraliði Hér geta sjúkraliðar með starfsleyfi skráð almenna starfsumsókn. Almennum starfsumsóknum er ekki svarað sérstaklega. Þær...
Sækja um starfSérnámsstöður í lyflækningum, fyrra stig (MRCP) – Sérnámsstöður lækna á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður...
Sækja um starfLjósmóðir í sumarafleysingar á HSN Sauðárkróki Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Sauðárkróki óskar eftir ljósmóður í sumarafleysingar á heilsugæslustöð. Æskilegt er að...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur óskast á taugalækningadeild Við sækjumst eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi til að starfa með okkur á taugalækningadeild í Fossvogi. Við bjóðum...
Sækja um starfSérnámsstöður í bæklunarskurðlækningum – Sérnámsstöður lækna á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður í sérnám í...
Sækja um starfSérnámsstöður í réttarlæknisfræði – Sérnámsstöður lækna á Landspítala Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður í hlutasérnámi til 18 mánaða í réttarlæknisfræði....
Sækja um starf