Heimahjúkrun HH leitar eftir hjúkrunarfræðingi í vaktavinnu. Um er að ræða ótímabundið starf á morgun-, kvöld- og helgarvaktir, starfshlutfall er 50-90% eða skv samkomulagi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsumdæmi og er með aðsetur í nýju og stórglæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf er haft að leiðarljósi. Einstaklingsmiðuð heimahjúkrun er sérsniðin að þörfum hvers og eins.
Hjúkrunarfræðingur vinnur náið með teymisstjóra. Starfssvið hjúkrunarfræðings í heimahjúkrun er að veita víðtæka hjúkrun í heimahúsum vegna langvinnra sjúkdóma, andlegrar og líkamlegrar skerðingar. Hjúkrunarfræðingur styður við einstaklinga og aðstandendur þeirra ásamt því að skipuleggja og veita þá hjúkrun sem þörf er á hverju sinni. Hann er einnig í samskiptum og samvinnu við aðrar sjúkrastofnanir og heilbrigðisstéttir með hagsmuni skjólstæðings að leiðarljósi.
– Íslenskt hjúkrunarleyfi
– Fjölbreytt reynsla af hjúkrun er æskileg
– Faglegur metnaður og áhugi á teymisvinnu
– Mikil samskiptahæfni og rík þjónustulund
– Sjálfstæði í starfi
– Góð almenn tölvuþekking
– Gilt ökuleyfi
– Hreint sakavottorð
– Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Stéttarfélag er Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram leyfisbréf og staðfestar upplýsingar um menntun. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur.
Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið.
Starfshlutfall er 50-90%
Umsóknarfrestur er til og með 23.01.2023
Hildur Sigurjónsdóttir
–
[email protected]
Hjúkrunarfræðingar á gjörgæsludeild Lausar eru til umsóknar tvær 80-100% stöður hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða...
Sækja um starfAre you a Registered Nurse and want to work in Iceland? Landspítali is the leading hospital in Iceland and the...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur – Heilsugæslan Efra-Breiðholti Vilt þú verða hluti af öflugum hópi starfsmanna? Heilsugæslan í Efra-Breiðholti auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100%...
Sækja um starfFjölmenningarleg hjúkrun – Heilbrigðisskoðun innflytjenda Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing í heilbrigðisskoðun innflytjenda í ótímabundið starf. Starfshlutfall er...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfSérfræðingur í klínískri sálfræði – Sálfræðiþjónusta geðsviðs Sálfræðiþjónusta Landspítala vill ráða til starfa 5 sérfræðinga í klínískri sálfræði við sálfræðiþjónustu...
Sækja um starf