Laus er til umsóknar 100% staða næringarfræðings (möguleiki á lægra starfshlutfalli eftir samkomulagi) við Sjúkrahúsið á Akureyri, staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi.
Mikil jákvæð þróun er á starfsumhverfi næringarfræðings við sjúkrahúsið, sem býður upp á þverfræðilega samvinnu og tækifæri til þróunar á sérsviði ásamt mikils fjölbreytileika í starfi.
Næsti yfirmaður er Guðjón Kristjánsson forstöðulæknir Lyflækninga.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.04.2023
Guðjón Kristjánsson
–
[email protected]
–
463-0100
Erla Björnsdóttir
–
[email protected]
–
463-0100
Hjúkrunarfræðingar á slysa- og bráðadeild Spennandi tímar framundan! Nú styttist í að við opnum nýja og glæsilega slysa- og bráðamóttöku...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar og hjúkrunarnemar óskast á Móberg hjúkrunarheimili HSU á Selfossi Hjúkrunarfræðingar og hjúkrunarnemar óskast til starfa á glænýtt hjúkrunarheimili, Móberg,...
Sækja um starfSérfræðingur í heimilislækningum – Heilsugæslan Efstaleiti Laust er til umsóknar starf sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna Efstaleiti. Um er að...
Sækja um starfSérfræðingur í heimilislækningum – Heilsugæslan Sólvangi Laust er til umsóknar starf sérfræðings í heimilislækningum við Heilsugæsluna Sólvangi. Um er að...
Sækja um starfLæknir óskast til starfa á heilsugæsluna á Höfn í Hornafirði Heilbrigðisstofnun Suðurlands óskar eftir að ráða lækni á heilsugæsluna á...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar/nemar í sumarafleysingar í heimahjúkrun á Akureyri Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Akureyri óskar eftir hjúkrunarfræðingum og hjúkrunarnemum í heimahjúkrun sumarafleysingar. Ráðningartími...
Sækja um starf