Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar 50% starf lektors í almennri hjúkrunarfræði við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands.
Almenn hjúkrun miðar að því að veita sjúklingum heildræna umönnun sem byggir á gagnreyndri þekkingu. Almennar hjúkrunarþarfir sjúklinga eru margþættar og það getur skipt sköpum fyrir árangur meðferðar sjúklings hvernig þeim er mætt.
Leitað er að öflugum einstaklingi með góða þekkingu á heilsugæsluhjúkrun með áherslu á heimahjúkrun til að taka þátt í uppbyggingu kennslu og vísinda í hjúkrunarfræði við deildina.
Kennsla á sviði heimahjúkrunar.
Rannsóknir á fræðasviðinu.
Þátttaka í þróun kennslu, rannsókna og stjórnun deildar.
Doktorspróf á sviði heilbrigðisvísinda.
Framhaldsmenntun á sviði hjúkrunar.
Rannsóknavirkni á fræðasviðinu, sjálfstæði og frumkvæði í rannsóknum.
Reynsla af háskólakennslu.
Stjórnunarreynsla er kostur.
Reynsla af öflun styrkja til rannsóknarstarfa er kostur.
Góð samstarfshæfni, lipurð í samskiptum ásamt góðri færni í að miðla eigin þekkingu.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar.
Æskilegt er að viðkomandi hefji störf sem fyrst eftir að störfum þeirra nefnda sem um málið fjalla er lokið.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Innan Háskólans eru fimm fræðasvið og deildir skólans eru 26 talsins. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum. Jafnframt er Háskóli Íslands öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðlega vísu og hafa vísindamenn Háskólans hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir vísindastörf sín.
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands er í fararbroddi á sviði heilbrigðismála á Íslandi og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu íslenska heilbrigðiskerfisins með menntun heilbrigðisstarfsmanna. Helstu sérfræðingar þjóðarinnar í heilbrigðisvísindum koma að kennslu og rannsóknum á sviðinu.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 05.08.2025
Helga Bragadóttir, helgabra@hi.is
Fá tilkynningu um svipuð störf
Doktorsnemi í landfræði Hlusta Laust er til umsóknar starf doktorsnema í landfræði við Líf- og umhverfisvísindadeild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla...
Sækja um þetta starfLektor í almennri hjúkrunarfræði með áherslu á hjúkrunarstjórnun og líknarhjúkrun Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors í almennri...
Sækja um þetta starf