Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar starf lektors í efnaverkfræði við Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands. Starfið felst meðal annars í að byggja upp sjálfstæðar rannsóknir sem standast alþjóðlegan samanburð. Ísland hefur mikla sérstöðu er varðar endurnýjanlegar orkuuppsprettur og iðnaðurinn er í dag að leita leiða til að þróa sjálfbæra efnaferla og því skiptir máli hvaða áhrif rannsóknir á sviðinu hafa á íslenskt samfélag.
Viðkomandi mun sinna kennslu námskeiða í efnaverkfræði, aðallega í grunnnámi, og leiðbeina framhaldsnemum í rannsóknanámi. Ætlast er til þess að viðkomandi muni kenna í námskeiðum um efnis- & orkujafnvægi, massaflutningsfræði, kerfisstýringar, tilraunir eða varmafræði. Rannsóknasvið viðkomandi getur verið á t.d. aðskilnaði efna, flutningsferlum , hönnun efnaferla, hönnun hvarfklefa, himnutækni eða þróun á sjálfbærum efnaferlum. Fyrirlestrar í grunnnámi fara fram á íslensku eða ensku. Alþjóðlegum umsækjendum er boðið upp á íslenskukennslu.
Við ráðningu verður horft til þess að umsækjendur falli sem best að aðstæðum og þörfum Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideildar.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Gert er ráð fyrir að starfið hefjist 1. desember 2023
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Ráðið verður í starfið til fimm ára fyrst í stað, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands er gróskumikið þekkingarsamfélag og fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Akademískt frelsi, fagmennska og jafnrétti eru gildi háskólans og er mikið lagt upp úr sveigjanleika og þátttöku starfsfólks í uppbyggingu náms og rannsókna. Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa um 390 manns við rannsóknir og kennslu á sviði verkfræði og náttúruvísinda. Starfsumhverfið er alþjóðlegt, þar sem fjórðungur bæði starfsfólks og framhaldsnema við sviðið eru erlendir, og það hlutfall er sífellt að aukast.
Á sviðinu eru um 2000 nemendur en við Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild stunda um 800 stúdentar nám í efnaverkfræði, iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræði. Þar af eru framhaldsnemar í meistara- og doktorsnámi um 140 talsins. Akademískt starfsfólk við deildina eru um 30 kennarar.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.05.2023
Egill Skúlason, Prófessor
–
[email protected]
Ingibjörg Óðinsdóttir, Mannauðsstjóri
–
[email protected]
Doktorsnemi við rannsóknir á þroskun næriþekjufruma og meðgöngueitrun – Háskóli Íslands Við leitum að áhugasömum og duglegum doktorsnema til að...
Sækja um starfKennari í eðlisfræði við Kvennaskólann í Reykjavík Kvennaskólinn í Reykjavík óskar eftir að ráða kennara í eðlisfræði skólaárið 2023-2024. Ráðningartími...
Sækja um starfLektor í reikningshaldi og endurskoðun, viðskiptafræðideild Háskóla Íslands Laust er til umsóknar 50% starf lektors í reikningshaldi og endurskoðun í...
Sækja um starfLektor í enskukennslu og annarsmálsfræðum. Háskóli Íslands, Hugvísindasvið og Menntavísindasvið Laust er til umsóknar starf lektors í enskukennslu og annarsmálsfræðum....
Sækja um starfLektor í stjórnun, viðskiptafræðideild Háskóla Íslands Laust er til umsóknar fullt starf lektors í stjórnun í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Starfsskyldur...
Sækja um starfKennari í heilsufræðum við Kvennaskólann í Reykjavík Kvennaskólinn í Reykjavík óskar eftir að ráða kennara í heilsufræðum skólaárið 2023-2024. Ráðningartími...
Sækja um starf