Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar fullt starf lektors í fötlunarfræði við Deild menntunar og margbreytileika á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Lögð er áhersla á að lektorinn búi yfir víðtækri þekkingu og rannsóknarreynslu á sviði fötlunarfræði og sé reiðubúinn til þverfaglegrar samvinnu innan deildar, sviðs og háskólans í heild.
Kennsla og rannsóknir á fræðasviði fötlunarfræði
Leiðsögn með nemum í fötlunarfræði og eftir atvikum öðrum meistaranemum við Deild menntunar og margbreytileika
Stjórnun og þátttaka í mótun kennslu og rannsókna
Samstarf við fræðafólk á innlendum og alþjóðlegum vettvangi
Samstarf við fatlað fólk, samtök þess og aðra sem koma að framþróun í málefnum fatlaðs fólks
Doktorspróf í fötlunarfræði eða skyldum greinum. Sé doktorspróf ekki á sviði fötlunarfræði skal umsækjandi, hið minnsta, hafa lokið gráðu í fötlunarfræði
Rannsóknavirkni á sviði fötlunarfræði sem m.a. er sýnt fram á með birtingum á ritrýndum vettvangi
Skýr framtíðarsýn um kennslu og rannsóknir á sviðinu
Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Deildar menntunar- og margbreytileika og Menntavísindasviðs.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Ferilskrá (Curriculum Vitae)
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Gert er ráð fyrir að ofangreint starf verði veitt frá 1. júlí 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Þó ekki fyrr en lokið er störfum þeirra nefnda sem um ráðninguna munu fjalla.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.02.2026
Berglind Rós Magnúsdóttir
Tölvupóstur: brm@hi.is
Svavar Jósefsson
Tölvupóstur: svavarjo@hi.is
Fá tilkynningu um svipuð störf
Lektor í taugasjúkdómafræði Hlusta Laust er til umsóknar 50% starf lektors í taugasjúkdómafræðum á fræðasviði taugasjúkdóma við Læknadeild Háskóla Íslands....
Sækja um þetta starfLektor í kennslufræði læsis og lestrarkennslu Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors í kennslufræði læsis með áherslu á...
Sækja um þetta starfLektor í stafrænum kennsluháttum Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors í stafrænum kennsluháttum við Deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði...
Sækja um þetta starfAðjúnkt í tómstunda- og félagsmálafræði Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts í tómstunda- og félagsmálafræði við Menntavísindasvið Háskóla...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í Marie Sklodowska-Curie Actions verkefni – Vistferlisgreiningar og landupplýsingakerfi Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við Matvæla-...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í Marie Sklodowska-Curie Actions verkefni við að þróa aðferðir fyrir vistferilsáhrifamat tengt vatnsnotkun Hlusta Laust er til umsóknar fullt...
Sækja um þetta starf