Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar fullt starf lektors á sviði hönnunar- og smíðakennslu við Deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.
Kennsla námskeiða í hönnun og smíði fyrir verðandi grunnskólakennara, leikskólakennara og tómstundafræðinga.
Leiðsögn nemenda við skrif lokaverkefna.
Rannsóknir á sviði hönnunar- og smíðakennslu.
Þátttaka í þróun kennsluhátta og rannsókna í hönnunar- og smíðakennslu innan Menntavísindasviðs.
Umsækjandi skal hafa lokið meistaraprófsritgerð og hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir starfsheiti lektors á sviðinu, staðfest með áliti dómnefndar, eða með doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla.
Leyfisbréf kennara.
Þekking á og reynsla af hönnunar- og smíðakennslu á vettvangi, ekki síst í grunn- og leikskóla.
Reynsla af kennslu á háskólastigi er æskileg.
Reynsla af rannsóknum á sviði list- og verkgreinamenntunar. Einnig er reynsla af rannsóknum á sviði hönnunar- og smíðakennslu æskileg.
Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Góð færni í íslensku, í ræðu og riti.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Ferilskrá (Curriculum Vitae)
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Gert er ráð fyrir að ofangreint starf verði veitt frá 1. júlí 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Þó ekki fyrr en lokið er störfum þeirra nefnda sem um ráðninguna munu fjalla.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir í grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.11.2025
Elsa Eiríksdóttir
Tölvupóstur: elsae@hi.is
Fá tilkynningu um svipuð störf
Doktorsnemi í landfræði eða ferðamálafræði Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema í landfræði eða ferðamálafræði við Líf- og...
Sækja um þetta starfNýdoktor við rannsóknir á rituðum heimildum um skelfisk Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf nýdoktors við Rannsóknasetur Háskóla Íslands...
Sækja um þetta starfAðjúnkt 2 í stærðfræði Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts 2 í stærðfræði við Raunvísindadeild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í Rannís verkefni við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Hlusta Laust er til umsóknar 80% starf doktorsnema við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild...
Sækja um þetta starfLektor í heimilislækningum Hlusta Laus eru til umsóknar tvö 25% störf lektora í heimilislækningum á fræðasviði heimilislæknisfræði við Læknadeild Háskóla...
Sækja um þetta starfRannsóknarlektor í jarðefnafræði Hlusta Laust er til umsóknar 50% starf rannsóknarlektors í jarðefnafræði við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Rannsóknalektorinn mun starfa...
Sækja um þetta starf