Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar 37% starf lektors í krabbameinslækningum innan lyflæknisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands.
Uppfylla kennsluskyldu sína innan fræðasviðs lyflæknisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands, þar á meðal klínísk kennsla á Landspítala.
Stunda vísindarannsóknir innan fræðigreinarinnar, sinna styrkjaöflun og vinna að nýsköpun á sviði krabbameinslækninga.
Vinna að þróun fræðasviðsins og stuðla að framgangi nemenda og ungra vísindamanna.
Hafa umsjón með nemendum í meistara- og doktorsnámi eftir því sem við á.
Efla samstarf innan Háskóla Íslands og Landspítala og stuðla að virku samstarfi við fagfólk innan heilbrigðisvísinda.
Taka þátt í stjórnsýslu- og stefnumótunarverkefnum á sviði lyflæknisfræði og heilbrigðisvísinda.
Doktorspróf á fræðasviðinu eða þekking og reynsla í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar.
Sérfræðileyfi og klínísk reynsla á sviði krabbameinslækninga.
Rannsóknavirkni á fræðasviðinu, sjálfstæði og frumkvæði í rannsóknum.
Reynsla af háskólakennslu, fræðilegri og klínískri.
Reynsla af leiðsögn til æðri háskólagráðu er æskileg.
Reynsla af öflun styrkja til rannsóknarstarfa er kostur.
Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Læknadeildar. Viðkomandi getur verið í samhliða störfum (allt að 100%) við Landspítala.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Gert er ráð fyrir að ofangreint starf verði veitt sem fyrst, eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Innan Háskólans eru fimm fræðasvið og deildir skólans eru 25 talsins. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum. Jafnframt er Háskóli Íslands öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðlega vísu og hafa vísindamenn Háskólans hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir vísindastörf sín.
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands er í fararbroddi á sviði heilbrigðismála á Íslandi og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu íslenska heilbrigðiskerfisins með menntun heilbrigðisstarfsmanna. Helstu sérfræðingar þjóðarinnar í heilbrigðisvísindum koma að kennslu og rannsóknum á sviðinu.
Frekari upplýsingar veitir Þórarinn Guðjónsson, forseti Læknadeildar (s. 525 4879 / tgudjons@hi.is).
Starfshlutfall er 37%
Umsóknarfrestur er til og með 09.12.2024
Einar Stefán Björnsson, einarsb@landspitali.is
Sími: 5431000
Sigurdís Haraldsdóttir, sigurdis@landspitali.is
Sími: 5431000
Fá tilkynningu um svipuð störf
Í Borg er markmiðið að allir njóti sín í starfi í streitulitlu starfsumhverfi, fái tækifæri til að gera sitt besta...
Sækja um þetta starfAðjúnkt 2 í stærðfræði Hlusta Laust er til umsóknar starf aðjúnkts 2 í stærðfræði við Raunvísindadeild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla...
Sækja um þetta starfSérfræðingur í efnafræði við efnafræðistofu Raunvísindastofnunar Háskólans Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf sérfræðings í efnagreiningum við efnafræðistofu Raunvísindastofnunar...
Sækja um þetta starfNýdoktor við Heimspekistofnun Hlusta Háskóli Íslands kallar eftir umsóknum um starf nýdoktors við Heimspekistofnun, Hugvísindasviði, tengt rannsóknaverkefninu Frelsi til merkingarsköpunar...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í rafmagns- og tölvuverkfræði Hlusta Laust er til umsóknar starf doktorsnema í rafmagns- og tölvuverkfræði á sviði læknisfræðilegrar myndgreiningar....
Sækja um þetta starf