Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar fullt starf lektors í lífefnafræði við námsbraut í lífefna- og sameindalíffræði innan Líf- og Umhverfisvísindadeildar á Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands. Starfið felur í sér kennslu og rannsóknir á sviði lífefnafræði, auk stjórnunarskyldu.
Starfssvið
Gert er ráð fyrir að sá umsækjandi er starfið hlýtur byggi upp sjálfstæðar rannsóknir, fjármagnaðar af sjálfsaflafé, sem standist alþjóðlegan samanburð. Viðkomandi mun hafa aðsetur hjá Raunvísindastofnun Háskólans (https://raunvisindastofnun.hi.is). Viðkomandi mun kenna námskeið í lífefnafræði, bæði í grunn- og framhaldsnámi, ásamt því að leiðbeina framhaldsnemum í rannsóknanámi. Fyrirlestrar í grunnnámi fara almennt fram á íslensku en Háskóli Íslands aðstoðar erlenda umsækjendur við að læra og ná tökum á íslensku máli.
Við ráðningu verður horft til þess að umsækjendur falli sem best að aðstæðum og þörfum námsbrautarinnar.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Umsóknarferli
Gert er ráð fyrir að starfið hefjist 1. ágúst 2023 eða eftir samkomulagi.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:
1. Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.
2. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil í háskólanámi.
3. Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae).
4. Ritaskrá.
5. Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið.
6. Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur.
7. Upplýsingar um þrjá mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við.
Í umsókn skal koma fram hver ritverka, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík.
Ráðið verður í starfið til fimm ára fyrst í stað, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands er gróskumikið þekkingarsamfélag og fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Akademískt frelsi, fagmennska og jafnrétti eru gildi háskólans og er mikið lagt upp úr sveigjanleika og þátttöku starfsfólks í uppbyggingu náms og rannsókna. Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa um 390 manns við rannsóknir og kennslu á sviði verkfræði og náttúruvísinda. Starfsumhverfið er alþjóðlegt, þar sem fjórðungur bæði starfsfólks og framhaldsnema við sviðið eru erlendir, og það hlutfall er sífellt að aukast. Á sviðinu eru um 2000 nemendur, þar af um fjórðungurinn framhaldsnemar. Verkfræði- og náttúruvísindasvið stærir sig af fjölbreytileika og umbótasinnuðu umhverfi þar sem þekkingaröflun og miðlun er í fyrirrúmi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.05.2023
Sigríður Rut Franzdóttir, Námsbrautarformaður lífefna- og sameindalíffræði, dósent
–
[email protected]
Ingibjörg Óðinsdóttir, Mannauðsstjóri
–
[email protected]
Doktorsnemi við rannsóknir á þroskun næriþekjufruma og meðgöngueitrun – Háskóli Íslands Við leitum að áhugasömum og duglegum doktorsnema til að...
Sækja um starfSérkennari á sérnámsbraut (starfsbraut) Fjölbrautaskólinn í Garðabæ óskar eftir að ráða sérkennara á sérnámsbraut ( starfsbraut ) frá 1. ágúst...
Sækja um starfLektor í stjórnun, viðskiptafræðideild Háskóla Íslands Laust er til umsóknar fullt starf lektors í stjórnun í viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Starfsskyldur...
Sækja um starfLektor í iðnaðarverkfræði Laust er til umsóknar starf lektors í iðnaðarverkfræði við Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði,...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfLektor í reikningshaldi og endurskoðun, viðskiptafræðideild Háskóla Íslands Laust er til umsóknar 50% starf lektors í reikningshaldi og endurskoðun í...
Sækja um starf