Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar fullt starf lektors í stafrænum kennsluháttum við Deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði Háskóla Íslands.
Starfssvið lektorsins felur í sér rannsóknir og kennslu um áhrif tækni á uppeldi, menntun og skólastarf. Meðal umfjöllunarefna eru tækninotkun og tæknin sem viðfang í námi og kennslu, stafrænt nám, fjarkennsla, blandað nám, stafræn miðlun og samskipti, gagnaukinn veruleiki og sýndarveruleiki, gervigreind og nýsköpun. Lögð er áhersla á áskoranir og tækifæri tengd tækniþróun og gert ráð fyrir þverfaglegu samstarfi innan deildar, sviðs og háskólans í heild.
Kennsla og rannsóknir á fræðasviðinu
Stjórnun, stefnumótun og þátttaka í þróunarstarfi
Mótun námsleiða um kennslu stafrænnar tækni, nýsköpunar og miðlun í samvinnu við aðra kennara á fræðasviðinu
Forysta um þróun stafrænna kennsluhátta í samráði við tengda aðila innan og utan háskólans
Leiðsögn grunn-, meistara- og doktorsnema
Við ráðningu verður horft til þess að sá sem starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum deildar og sviðs.
Doktorspróf á sviði tengdu stafrænni tækni, nýsköpun og miðlun í uppeldi og menntun
Virkni og frumkvæði í rannsóknum og þróunarstarfi tengdu sviðinu
Reynsla af nýsköpunarumhverfi er kostur
Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Reynsla af kennslu á háskólastigi er æskileg
Reynsla af starfi innan grunn- eða framhaldsskóla er kostur
Reynsla af þátttöku í alþjóðlegu samstarfi er kostur
Góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf sem fyrst eftir að þær nefndir sem um málið fjalla hafa lokið störfum eða eftir nánara samkomulagi.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska¿ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.
Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.02.2026
Fá tilkynningu um svipuð störf
Lektor í taugasjúkdómafræði Hlusta Laust er til umsóknar 50% starf lektors í taugasjúkdómafræðum á fræðasviði taugasjúkdóma við Læknadeild Háskóla Íslands....
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í Marie Sklodowska-Curie Actions verkefni við að þróa aðferðir fyrir vistferilsáhrifamat tengt vatnsnotkun Hlusta Laust er til umsóknar fullt...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í Marie Sklodowska-Curie Actions verkefni – Vistferlisgreiningar og landupplýsingakerfi Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við Matvæla-...
Sækja um þetta starfLektor í kennslufræði læsis og lestrarkennslu Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors í kennslufræði læsis með áherslu á...
Sækja um þetta starfAðjúnkt í tómstunda- og félagsmálafræði Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts í tómstunda- og félagsmálafræði við Menntavísindasvið Háskóla...
Sækja um þetta starfLektor í fötlunarfræði Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors í fötlunarfræði við Deild menntunar og margbreytileika á Menntavísindasviði...
Sækja um þetta starf