Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar 50% starf lektors í taugasjúkdómafræðum á fræðasviði taugasjúkdóma við Læknadeild Háskóla Íslands.
Umsjón og kennsla námskeiða í taugasjúkdómum við Læknadeild, þ.m.t. klínísk kennsla við Landspítala
Rannsóknir á fræðasviðinu
Þátttaka í nefndarstörfum og öðrum stjórnunarstörfum
Doktorspróf á fræðasviðinu eða þekking og reynsla í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar
Sérfræðileyfi í taugalækningum og klínísk reynsla af taugalækningum
Rannsóknavirkni á fræðasviðinu, sjálfstæði og frumkvæði í rannsóknum
Reynsla af háskólakennslu, fræðilegri og klínískri
Reynsla af leiðsögn til æðri háskólagráðu er æskileg
Sérþekking á úttauga- og vöðvasjúkdómum er æskileg
Stjórnunarreynsla er æskileg
Reynsla af öflun styrkja til rannsóknarstarfa er kostur
Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Læknadeildar.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 16.02.2026
Ólafur Árni Sveinsson
Tölvupóstur: olafursv@landspitali.is
Sædís Sævarsdóttir
Tölvupóstur: saedis@hi.is
Fá tilkynningu um svipuð störf
Doktorsnemi í Marie Sklodowska-Curie Actions verkefni við að þróa aðferðir fyrir vistferilsáhrifamat tengt vatnsnotkun Hlusta Laust er til umsóknar fullt...
Sækja um þetta starfLektor í kennslufræði læsis og lestrarkennslu Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors í kennslufræði læsis með áherslu á...
Sækja um þetta starfLektor í fötlunarfræði Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors í fötlunarfræði við Deild menntunar og margbreytileika á Menntavísindasviði...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í Marie Sklodowska-Curie Actions verkefni – Vistferlisgreiningar og landupplýsingakerfi Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við Matvæla-...
Sækja um þetta starfAðjúnkt í tómstunda- og félagsmálafræði Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts í tómstunda- og félagsmálafræði við Menntavísindasvið Háskóla...
Sækja um þetta starfLektor í stafrænum kennsluháttum Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors í stafrænum kennsluháttum við Deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði...
Sækja um þetta starf