Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar fullt starf lektors á sviði upplýsingafræða með áherslu á upplýsingahegðun, n.tt. skipulagningu, stjórnun og miðlun upplýsinga.
Lektornum er ætlað að sinna kennslu í upplýsingafræði í meistara- og doktorsnámi. Leitað er eftir háskólakennara sem getur kennt greinar sem tengjast bókasafns- og upplýsingafræði en hafi einnig þekkingu á einu eða fleirum sérfræðisviðum greinar. Lektornum er einnig ætlað að sinna rannsóknum á sviði upplýsingafræði t.a.m með áherslu á hlutverk bókasafna, upplýsingalæsi- og miðlun sem og skipulagningu, stjórnun og hagnýtingu upplýsinga út frá upplýsingahegðun og þörfum notenda, samhliða ýmsum tæknilegum áskorunum eins og stafvæðingu og gervigreind. Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að helga sig akademísku starfi, byggja upp vaxandi fræðasvið og stuðla að framþróun rannsókna og rannsóknaraðferða á sviði upplýsingafræði.
Doktorspróf á sviði bókasafns- og upplýsingafræði
Virkni og hæfni á sviði rannsókna í upplýsingafræði eða skyldum greinum, sem kemur m.a. fram í birtingum í alþjóðlegum ritrýndum tímaritum
Reynsla af fjölþjóðlegu rannsóknarsamstarfi og samanburðarrannsóknum á fræðasviðinu æskileg
Reynsla og hæfni í kennslu á háskólastigi
Starfsreynsla í fræðigreininni er kostur
Frumkvæði, áræðni og sjálfstæð vinnubrögð
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og miðlunar þekkingar
Við ráðningu verður miðað við að sá einstaklingur er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum námsbrautar í upplýsingafræði á Félagsvísindasviði.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Ráðið verður í starfið til fimm ára með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum, sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. Miðað er við að ráðið verði í starfið frá 1. febrúar 2025, eða samkvæmt nánara samkomulagi, þó ekki fyrr en lokið er störfum þeirra nefnda sem um ráðninguna fjalla.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um þrjá mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við.
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.
Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Um meðferð umsókna, mat á hæfni umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans, sjá hér: http://www.hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér: https://www.hi.is/haskolinn/malstefna%5Fhaskola%5Fislands.
Upplýsingafræði tilheyrir Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands. Deildin er ein sex deilda Félagsvísindasviðs. Nám í upplýsingafræði skal vera í takt við þarfir samfélagsins á hverjum tíma. Námið þarf að uppfylla kröfur um faglega og fræðilega þekkingu og hæfni útskrifaðra nemenda. Áhugi á náminu er töluverður og áfram er gert ráð fyrir að vinna að stöðugri þróun kennsluhátta og koma enn betur til móts við þarfir nemenda sem er í samræmi við gildi Háskóla Íslands um jafnrétti sem leiðarljós og grundvöll fjölbreytni í háskólasamfélaginu. Þróun náms í upplýsingafræði er í anda faggreinarinnar, þ.e. að vinna að stöðugum umbótum svo upplýsingafræðin geti áfram verið drifkraftur nýrrar þekkingar og undirstaða framfara í samfélagi og atvinnulífi. Kennsla í upplýsingafræði fer fram í fjarnámi. Fjarvinnustefna Háskóla Íslands gefur svigrúm til allt að 40% fjarvinnu, annars er ætlast til að starfsfólk sé á staðnum. Við námsbrautina er boðið uppá diplóma- og meistaranám til starfsréttinda í upplýsingafræði, auk doktorsnáms.
Á Félagsvísindasviði starfa á þriðja hundrað manns að kennslu og rannsóknum. Vísindafólk sviðsins stundar grunnrannsóknir, hagnýtar rannsóknir og þjónusturannsóknir og lögð er áhersla á fjölbreytta miðlun þekkingar, öflugar samræður víð íslenskt sem og alþjóðlegt fræðasamfélag.
Háskóli Íslands er alþjóðlegur rannsóknaháskóli og stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun landsins. Um 1.500 starfsmenn starfa í föstum störfum við skólann og um 2.200 eru lausráðnir. Nemendur við skólann eru um 12.500. Skólinn skiptist í sex grunneiningar, miðlæga stjórnsýslu og fimm fræðasvið. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunn- og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.10.2024
Ragna Kemp Haraldsdóttir, rh@hi.is
Sími: 525-5489
Fá tilkynningu um svipuð störf
Lektor í mannfræði í Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild, Félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors í...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands: Gagnsæi og áhrifamælinga í hönnun félagslegra viðskiptalíkana Hlusta Námsleið í umhverfis- og...
Sækja um þetta starfViltu vinna á góðum vinnustað og njóta fjölbreyttra daga? Leggur þú alúð í starfið þitt? Þá er Jöklaborg mögulega staðurinn....
Sækja um þetta starfDoktorsnemi við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands: Áhrifatryggð í samfélagslegri nýsköpun Hlusta Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands auglýsir eftir umsóknum um doktorsnemastöðu, sem nýtur...
Sækja um þetta starfAðjúnkt 2 í enskum málvísindum við Hugvísindasvið Hlusta Háskóli Íslands óskar eftir umsóknum um fullt starf aðjúnkts 2 í enskum...
Sækja um þetta starfEngjaborg er fjögurra deilda leikskóli í Grafarvogi. Í Engjaborg er lögð áhersla á nám og velferð barna þar sem allir...
Sækja um þetta starf