Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Háskóli Íslands auglýsir nýdoktorastörf sem ætluð eru þeim sem hafa lokið doktorsprófi á síðastliðnum sjö árum (janúar 2019 og síðar) og þar með talin þau sem koma til með að ljúka doktorsprófi fyrir 1. október 2025. Tekið er tillit til veikinda og fæðingarorlofs við mat á tíma að loknu doktorsprófi. Styrkirnir verða veittir til allt að þriggja ára.
Sérstök úthlutunarnefnd skipuð af rektor annast mat, forgangsröðun umsókna og úthlutun. Í úthlutunarnefnd situr einn fulltrúi frá hverju fræðasviði, ásamt formanni sem skipaður er af rektor án tilnefningar.
Við mat á umsóknum er fyrst og fremst farið eftir greinargerð um rannsóknarverkefnið og ritvirkni umsækjanda, með tilliti til þess tíma sem liðinn er frá doktorsprófi. Við val á milli umsækjenda er litið til jafnvægis á milli fræðasviða eftir því sem unnt er. Fræðasvið Háskóla Íslands eru Félagsvísindasvið, Heilbrigðisvísindasvið, Hugvísindasvið, Menntavísindasvið og Verkfræði- og náttúruvísindasvið.
Starf nýdoktors er tímabundið starf við rannsóknir sem er ætlað að veita frekari þjálfun og reynslu að loknu doktorsnámi, sem undirbýr viðkomandi undir akademískan starfsferil.
Doktorspróf
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Umsókninni skal fylgja
Ferilskrá og kynningarbréf,
Greinargerð um rannsóknarverkefni. Í greinargerð skal meðal annars fjalla um vísindalegt nýmæli, gildi og markmið rannsóknar auk almennrar lýsingar á verkefninu sem birta má opinberlega. Greinargerðin fyrir utan almennu lýsinguna er trúnaðarmál.
Ritaskrá,
Afrit af doktorsprófsskírteini eða staðfesting frá viðkomandi háskóla (frá leiðbeinanda og/eða viðeigandi háskóladeild) um að umsækjandi verji doktorsritgerð fyrir 1. október 2025,
Staðfesting frá fræðasviði, deild eða stofnun við Háskóla Íslands um að umsækjandi muni njóta fullnægjandi aðstöðu og hafa aðgang að búnaði til að stunda fyrirhugaðar rannsóknir eftir því sem við á (sjá sniðmát).
Öll innsend fylgigögn skulu vera í PDF formi.
Einnig er óskað eftir því að umsækjendur fái tvo fagaðila til þess að senda inn umsögn um gæði rannsókna umsækjenda og getu viðkomandi til að sinna fyrirhugaðri rannsókn. Æskilegt er að annar umsagnaraðilinn hafi tengst doktorsverkefni umsækjanda. Umsagnir berist í PDF formi á tölvupóstfangið rannsoknasjodir@hi.is áður en umsóknarfrestur rennur út.
Miðað er við að styrkþegar hefji störf eigi síðar en í desember 2025.
Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfanna þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningar í störf við Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Nánari upplýsingar, þ.á.m. um ofangreinda staðfestingu á aðstöðu, veitir Vísinda- og nýsköpunarsviði (rannsoknasjodir@hi.is).
Umsóknum skal skilað rafrænt, umsóknareyðublað ásamt leiðbeiningum má nálgast hér.
Auglýsing byggir á verklagsreglum um Nýdoktorasjóð Íslands.
VINSAMLEGA ATHUGIÐ AÐ SÆKJA ÞARF UM NÝDOKTORASTYRKI Í GEGNUM EFTIRFARANDI SLÓÐ EN EKKI Í GEGNUM STARFATORG: NÝDOKTORASTYRKUR 2025
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.05.2025
Maya Staub, maya@hi.is
Fá tilkynningu um svipuð störf
Doktorsnemi í landfræði Hlusta Laust er til umsóknar starf doktorsnema í landfræði við Líf- og umhverfisvísindadeild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla...
Sækja um þetta starfPrófessor á fræðasviði húð- og kynsjúkdómalækninga og starf yfirlæknis innan bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Hlusta Laust er til umsóknar fullt...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í rafmagns- og tölvuverkfræði Hlusta Starf doktorsnema í rafmagns- og tölvuverkfræði á sviði læknisfræðilegrar myndgreiningar eru laust til umsóknar....
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í eðlisefnafræði (tilraunastaða) Hlusta Laust er til umsóknar starf doktorsnema í eðlisefnafræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands. Starfið...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í eðlisefnafræði (fræðileg staða) Hlusta Laust er til umsóknar starf doktorsnema í eðlisefnafræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands....
Sækja um þetta starfLektor í lífefnafræði Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors í lífefnafræði við námsbraut í lífefna- og sameindalíffræði innan...
Sækja um þetta starf