Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar 50% starf rannsóknarlektors í jarðefnafræði við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands.
Rannsóknalektorinn mun starfa innan jarðefnafræðihóps Jarðvísindastofnunar og sinna alþjóðlegum rannsóknum, ásamt því að byggja upp og bæta innviði fyrir rannsóknir hópsins. Rannsóknahópurinn leggur áherslu á sérstöðu íslenskrar náttúru og annarra jarðfræðilegra svæða, sem leitt geta til betri skilnings á þeim ferlum sem móta umhverfi okkar og jörðina.
Rannsóknir á sviði jarðefnafræði með áherslu á yfirborð jarðar, umhverfisjarðefnafræði og samspil vatns og bergs
Aðkoma að leiðbeiningu framhaldsnema og mögulega annarri kennslu við Jarðvísindadeild
Doktorspróf í jarðfræði, jarðefnafræði eða jarðvísindum
Reynsla á sviði sýnatöku vatns og bergs og efnagreiningar á vatni, bergi og gasi er æskileg
Virkni og hæfni í rannsóknum á alþjóðavettvangi sem meðal annars birtist í ritrýndum rannsóknagreinum á viðurkenndum vettvangi.
Reynsla af samvinnuverkefnum og öflun styrkja til rannsóknastarfa æskileg
Frumkvæði og öguð vinnubrögð
Lipurð í mannlegum samskiptum
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi hefji störf sem fyrst en þó eigi síðar en 1. janúar 2026.
Ráðið verður í starfið til tveggja ára, með möguleika á framlengingu til þriggja ára til viðbótar og ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Við ráðningu verður horft til þess að umsækjendur falli sem best að aðstæðum og þörfum Jarðvísindastofnunar.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni:
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur¿
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir í grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 17.11.2025
Olgeir Sigmarsson
Tölvupóstur: olgeir@hi.is
Andri Stefánsson
Tölvupóstur: as@hi.is
Fá tilkynningu um svipuð störf
Doktorsnemi í Marie Sklodowska-Curie Actions verkefni við umhverfis- og byggingarverkfræðideild Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema við Umhverfis-...
Sækja um þetta starfNýdoktor við rannsóknir á rituðum heimildum um skelfisk Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf nýdoktors við Rannsóknasetur Háskóla Íslands...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í landfræði eða ferðamálafræði Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf doktorsnema í landfræði eða ferðamálafræði við Líf- og...
Sækja um þetta starfLektor í kennslu hönnunar og smíða hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors á sviði...
Sækja um þetta starfLektor í heimilislækningum Hlusta Laus eru til umsóknar tvö 25% störf lektora í heimilislækningum á fræðasviði heimilislæknisfræði við Læknadeild Háskóla...
Sækja um þetta starfAðjúnkt 2 í stærðfræði Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts 2 í stærðfræði við Raunvísindadeild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs...
Sækja um þetta starf