Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar 50% starf sálfræðings í Nemendaráðgjöf Háskóla Íslands (NHÍ). Nemendaráðgjöf heyrir undir Kennslusvið Háskóla Íslands og veitir háskólanemendum margþætta þjónustu en þar starfa nú 17 manns. Starf sálfræðings við NHÍ er fjölbreytt, viðfangsefnin áhugaverð og starfsumhverfið gott.
Kortlagning á sálfræðilegum vanda, ráðgjöf og stuðningur við nemendur Háskóla Íslands
Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla
Hópmeðferð varðandi kvíða, þunglyndi, streitu og sjálfsstyrkingu
Forvarnarstarf, s.s. geðfræðsla fyrir nemendur Háskóla Íslands
Löggild starfsréttindi sálfræðings
Þekking og reynsla af hugrænni atferlismeðferð (HAM)
Hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
Hæfni í að koma fram, halda kynningar og námskeið
Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í ræðu og riti
Góð almenn tölvukunnátta
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
Afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 13.02.2026
Svandís Sturludóttir
Tölvupóstur: svandiss@hi.is
Fá tilkynningu um svipuð störf
Forseti Menntavísindasviðs Hlusta Laust er til umsóknar starf forseta Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Menntavísindasvið er eitt af fimm fræðasviðum háskólans og...
Sækja um þetta starfForseti Hugvísindasviðs Hlusta Laust er til umsóknar starf forseta Hugvísindasviðs Háskóla Íslands. Hugvísindasvið er eitt af fimm fræðasviðum háskólans og...
Sækja um þetta starf