Laust er til umsóknar tímabundið starf sálfræðings fyrir börn og unglinga við Heilsugæsluna Hlíðum. Starfshlutfall er 80-100% eða samkvæmt nánara samkomulagi. Ráðning er til 1 árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. apríl eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf og spennandi vettvang fyrir reyndan sálfræðing með þekkingu á ýmsum meðferðarformum í sálfræði. Sálfræðingur starfar í þverfaglegu teymi með læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki í skemmtilegu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. Til stendur að stöðin flytji í stærra og betra húsnæði í síðasta lagi fyrripart ársins 2024.
Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt í nærumhverfi og þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga sem hefur fjölgað mikið undanfarin ár
Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)
Sálfræðiþjónusta fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri
Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda
Einstaklings- og fjölskyldumiðuð viðtalsmeðferð
Námskeið í hugrænni atferlismeðferð, ráðgjöf og fræðsla
Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði
Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu
Sinnir eftir þörfum foreldrum sem sækja þjónustu í mæðra-, ung- og smábarnavernd
– Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði
– 5 ára starfsreynsla af klínisku starfi er æskileg
– Reynsla af greiningu og meðferð barna og unglinga með geðrænan vanda
– Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
– Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
– Þekking og reynsla af gagnreyndum aðferðum, s.s. hugrænni atferlismeðferð
– Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
– Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
– Góð íslenskukunnátta skilyrði
– Góð almenn tölvukunnátta
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram afrit af leyfisbréfi og prófskírteinum ásamt hreinu sakavottorði. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.02.2023
Hildur Svavarsdóttir
–
[email protected]
–
513-5900
Stjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfSérfræðingur í þjálfunar- og skírteinamálum flugs Samgöngustofa óskar eftir að ráða sérfræðing í þjálfunar- og skírteinamálum flugs. Helstu verkefni og...
Sækja um starfSérfræðingur í skattrannsóknum tengdum peningaþvætti Skatturinn leitar að öflugum liðsauka til starfa á starfsstöð Skattsins í Reykjavík og til að...
Sækja um starfSjúkraliðar óskast á bráðamóttöku Landspítala Við viljum ráða sjúkraliða til starfa á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi. Deildin er opin allan...
Sækja um starfÍ nýju matvælaráðuneyti mætast málaflokkar sjávarútvegs, landbúnaðar og matvæla auk landgræðslu og skógræktar. Áhersla er lögð á loftslagsmál, aðgengi að hollum mat...
Sækja um starfTeymisstjóri vöruhúsa gagna hjá embætti landlæknis Embætti landlæknis leitar að jákvæðum og lausnamiðuðum sérfræðingi í uppbyggingu á vöruhúsum gagna á...
Sækja um starf