Samgöngustofa auglýsir lausa til umsóknar stöðu sérfræðings í flugrekstrar- og skírteinadeild flugsviðs hjá Samgöngustofu.
Meðal helstu verkefna eru þróun verkferla, skipulag og þátttaka í framkvæmd úttekta og samstarf við eftirlitsmenn. Við leitum að starfsmanni sem á auðvelt með að takast á við ný og ólík verkefni og er tilbúinn að vinna í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði. Ennfremur reynir á frumkvæði hvað varðar stöðugar umbætur í starfi deildarinnar og framþróun verkefna.
Í boði er fjölbreytt og spennandi starf hjá metnaðarfullri stofnun sem starfar í alþjóðlegu umhverfi. Við bjóðum upp á góða starfsaðstöðu og frábæra vinnufélaga.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Öllum umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf. Í ráðningarferlinu verður óskað eftir að umsækjendur skili sakavottorði. Hafi umsækjandi verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi getur það orðið til þess að viðkomandi telst ekki hæfur til að gegna starfi hjá stofnuninni. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í a.m.k. sex mánuði ef staða losnar á ný. Samgöngustofa áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Samgöngustofa hvetur fólk óháð kyni, þjóðernisuppruna og fötlun til að sækja um.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.01.2023
Katrín Pálsdóttir, Deildarstjóri flugrekstrar- og skírteinadeildar
–
[email protected]
–
4806000