Heilsugæslan í Efra-Breiðholti auglýsir eftir sérfræðingi í hjúkrun. Um er að ræða nýjung á heilsugæslustöðinni sem miðar að því að efla hjúkrunarþjónustu stöðvarinnar. Starfið er 80-100% ótímabundið. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Heilsugæsluhjúkrun er mjög fjölbreytt og því getur sérfræðiþekking í ýmsum sérgreinum nýst vel til að efla hjúkrunarþjónustu í heilsugæslu. Lögð er áhersla á öflugt forvarnarstarf og heilsueflingu innan heilsugæslunnar og er það stór þáttur í starfinu, sérstaklega heilsueflandi móttökur og heilsuvernd eldra fólks. Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni í dýnamísku umhverfi.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.05.2023
Vildís Bergþórsdóttir
–
[email protected]
–
821-2160
Nanna Sigríður Kristinsdóttir
–
[email protected]
–
513-5300
Sálfræðingur við sálfræðiþjónustu geðsviðs Sjúkrahúsið á Akureyri vill ráða til sín sálfræðing á geðsvið sjúkrahússins. Um er að ræða 40-65%...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfSumarafleysing í sjúkraflutningum/húsumsjón á HSN Blönduósi Heilbrigðisstofnun Norðurlands Blönduósi óskar eftir aðila í sjúkraflutinga/húsumsjón í sumarafleysingar. Ráðningartími frá 1. júní...
Sækja um starfÞjónustustjóri sjúkraskrárkerfisins Sögu Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að þjónustustjóra sjúkraskrárkerfisins Sögu í deild rafrænnar þjónustu. Um er að ræða tímabundið starf...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfSjúkraliðar/nemar í sumarafleysingar í heimahjúkrun á Akureyri Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Akureyri óskar eftir sjúkraliðum/nemum í sumarafleysingar í heimahjúkrun. Ráðningartímabil er...
Sækja um starf