SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða sérfræðing í greiningu og eftirlit með lausafjár- og fjármögnunaráhættu, í deild yfirsýnar á svið fjármálastöðugleika.
Eitt meginverkefna Seðlabanka Íslands er að stuðla að stöðugu, öruggu og virku fjármálakerfi. Svið fjármálastöðugleika fylgist með þróun fjármálakerfisins, styrk þess og skilvirkni og áhrifum efnahagslegra þátta á kerfið í heild sinni ásamt því að rannsaka og greina áhættuþætti sem raskað gætu stöðugleika íslenska fjármálakerfisins.
Við leitum nú að öflugum einstaklingi í teymi yfirsýnar, en eitt verkefna þess er að sjá um greiningu og eftirlit með lausafjárstöðu og fjármögnun fjármálafyrirtækja.
Greining og áhættumat á lausafjárstöðu og fjármögnun banka og annarra lánastofnana
Umsjón með álagsprófum vegna lausafjár- og fjármögnunaráhættu
Eftirfylgni með varúðarreglum um laust fé og fjármögnun
Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi
Skrif í rit bankans og kynningar
Tilfallandi verkefni, umsagnir og ráðgjöf á ábyrgðasviðum fjármálastöðugleika
Háskólapróf í hagfræði, verkfræði eða sambærilegu. Framhaldsmenntun er kostur
Viðeigandi reynsla af störfum á fjármálamarkaði
Rík greiningarhæfni og reynsla af vinnslu gagna
Þekking af gagnavinnslu, greiningu og framsetningu gagna með t.d. SQL og Power Bi er kostur
Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna með öðrum
Frumkvæði, ábyrgð, heiðarleiki og metnaður í starfi
Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku sem og í miðlun upplýsinga
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
Nánari upplýsingar um starfi veita Vigdís Ósk Helgadóttir forstöðumaður yfirsýnar ([email protected]) og Erla Traustadóttir sérfræðingur á mannauðssviði ([email protected]). Umsóknarfrestur er til og með 14. ágúst nk.