Vilt þú taka þér leiðandi hlutverk í að móta aðlögun íslenskra sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga?
Byggðastofnun leitar nú að drífandi einstaklingi með brennandi áhuga á loftslagsmálum til starfa við tveggja ára samstarfsverkefni umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, Byggðastofnunar, Veðurstofu Íslands og Skipulagsstofnunar. Um er að ræða 100% starfshlutfall til tveggja ára.
Verkefnið snýr að því að hámarka aðlögunargetu íslenskra sveitarfélaga gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga og lágmarka um leið efnahagslegt tjón og neikvæð áhrif á íslenskar byggðir, innviði, samfélög og byggðaþróun.
Sérfræðingurinn mun gegna lykilhlutverki í gagnaöflun, skipulagi og framkvæmd verkefnisins sem og mótun aðferðafræði og meginafurða verkefnisins, í nánu samstarfi við verkefnastjóra og aðra sérfræðinga.
Afurðir verkefnisins verða m.a. aðlögunaraðgerðir á sveitarstjórnarstigi og leiðarvísir íslenskra sveitarfélaga til mótunar aðlögunaraðgerða vegna áhrifa loftslagsbreytinga. Fimm íslensk sveitarfélög munu taka þátt í verkefninu og kemur það í hlut sérfræðingsins að halda utan um samskipti við fulltrúa þeirra, sem og fulltrúa þeirra fagstofnanna og annarra aðila sem kalla þarf að borðinu, í nánu samstarfi við verkefnastjóra.
Aðalskrifstofa Byggðastofnunar er í nýju húsnæði á Sauðárkróki en í samræmi við byggðastefnu stjórnvalda er möguleiki á að ráða í starfið óstaðbundið. Umsækjendur þurfa að tilgreina ósk um starfsstöð í umsókn. Viðkomandi mun einnig hafa aðgang að tímabundinni vinnuaðstöðu hjá Veðurstofu Íslands og/eða Skipulagsstofnun eftir samkomulagi. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsóknarfrestur er til og með 11. ágúst 2023. Umsóknum skal skilað á umsóknarform sem finna má í Umsóknargátt á heimasíðu stofnunarinnar, www.byggdastofnun.is.
Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar um starfið veita Ragnhildur Friðriksdóttir sérfræðingur og verkefnisstjóri á þróunarsviði [email protected], eða Sigríður Elín Þórðardóttir forstöðumaður þróunarsviðs [email protected] eða í síma 455 5400.