Sérnámsstöður í lyflækningum, seinna stig til fullra sérfræðiréttinda – Sérnámsstöður lækna á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri
Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður í lyflækningum, seinna stig sem tekur við af MRCP gráðu og lýkur með fullum sérfræðiréttindum. Sérnámið er vottað og viðurkennt af Royal College of Physicians í Bretlandi og er marklýsing og framgangsmat unnið samkvæmt þeirra forskrift og í samræmi við reglugerð 856/2023. Sérnám fer fram á Landspítala og á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er 27. febrúar 2024, annars getur upphaf starfs verið samkvæmt samkomulagi við kennslustjóra.
Sérnám fer að mestu leyti fram á Landspítala en einnig á Sjúkrahúsinu á Akureyri í flestum greinum. Ef samvinna hefur verið staðfest milli LSH og SAk um sérnám í viðkomandi sérgrein er gert ráð fyrir að sérnámslæknar vinni á báðum stöðum nema sérstakar aðstæður leyfi það ekki.
Sérnám í læknisfræði á Íslandi hefur þróast hratt á undanförnum árum. Nú er veitt sérnám í flestum grunngreinum lækninga á Íslandi í samræmi við alþjóðleg gæðaviðmið. Sérnám lækna hefur mikilvæga þýðingu fyrir framþróun lækninga, gæði og öryggi þjónustu við sjúklinga.
Doktorsnám er mögulegt samhliða klínísku sérnámi. Ef fyrir liggur samþykkt rannsóknaráætlun fyrir doktorsnám getur umsækjandi sótt um slíka stöðu. Að lágmarki væri þá um 50% ráðningu við Landspítala að ræða eða eftir samkomulagi og klínískt sérnám lengt sem því nemur og í samræmi við reglugerð 856/2023. Taka skal óskir um slíkt sérstaklega fram í athugasemdum við umsókn og í kynningarbréfi.
Sjá kynningarmyndband.
*Further information for applicants who do not speak Icelandic or have an Icelandic medical licence.
Sjá almennt kynningarmyndband um sérnám í læknisfræði, upplýsingar um sérnám á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Landspítali áskilur sér rétt til að falla frá áformum um ráðningu eða ráða fleiri en einn á grundvelli auglýsingar þessarar
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir. Sjúkrahúsið er kennslusjúkrahús og þekkingarstofnun sem leggur metnað sinn í kennslu og rannsóknir í heilbrigðisvísindum. Sjúkrahúsið á Akureyri leggur áherslu á samvinnu við heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni, tekur þátt í uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á landsvísu og er miðstöð læknisfræðilegrar þjónustu sjúkraflugs í landinu.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérnámslæknir, læknir með lækningaleyfi
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.09.2023
Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson, kennslustjóri
–
[email protected]
Gunnar Thorarensen, yfirlæknir sérnáms
–
[email protected]
Hjúkrunarfræðingur á skurðlækningadeild Laus er til umsóknar 80-100% staða hjúkrunarfræðings á skurðlækningadeild. Um er að ræða vaktavinnu og er staðan...
Sækja um starfSjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi á smitsjúkdómadeild Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi óskast til starfa á smitsjúkdómadeild A7 í Fossvogi....
Sækja um starfViltu vera á skrá? Hjúkrunarfræðingur/ljósmóðir Hér geta hjúkrunarfræðingar og ljósmæður með starfsleyfi skráð almenna starfsumsókn. Almennum starfsumsóknum er ekki svarað...
Sækja um starfHeilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir starf Iðjuþjálfa laust til umsóknar Um er að ræða framtíðarstarf iðjuþjálfa hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi frá...
Sækja um starfLyfjafræðingur – Sjúkrahúsið á Akureyri Laus er til umsóknar 80% staða lyfjafræðings í sjúkrahúsapóteki Sjúkrahússins á Akureyri. Um framtíðarstarf er...
Sækja um starfSjúkraliðar/nemar í sumarafleysingar í heimahjúkrun á Akureyri Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Akureyri óskar eftir sjúkraliðum/nemum í sumarafleysingar í heimahjúkrun. Ráðningartímabil er...
Sækja um starf