Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður í öldrunarlækningum til tveggja ára. Um er að ræða viðbótarsérnám við heimilislækningar eða undirsérgrein lyflækninga og er það forkrafa að vera með sérfræðileyfi í annarri þeirra sérgreina.
Sérnámið er byggt á marklýsingu Royal Colleges of Physicians Training Board í Bretlandi og vottað af mats- og hæfisnefnd Heilbrigðisráðuneytisins. Sérnám fer fram á Landspítala en það er mögulegt að taka hluta á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Upphafsdagur ráðningar er 27. febrúar 2024 en þann dag er móttökudagur, annars getur upphaf starfs verið samkvæmt samkomulagi við kennslustjóra hverrar sérgreinar fyrir sig.
Sérnám í læknisfræði á Íslandi hefur þróast hratt á undanförnum árum. Nú er veitt sérnám í flestum grunngreinum lækninga á Íslandi í samræmi við alþjóðleg gæðaviðmið. Sérnám lækna hefur mikilvæga þýðingu fyrir framþróun lækninga, gæði og öryggi þjónustu við sjúklinga.
Doktorsnám er nú mögulegt samhliða klínísku sérnámi. Ef fyrir liggur samþykkt rannsóknaráætlun fyrir doktorsnám getur umsækjandi sótt um slíka stöðu. Að jafnaði væri þá um 50% ráðningu við Landspítala að ræða eða eftir samkomulagi og klínískt sérnám lengt sem því nemur og í samræmi við reglugerð 467/2015. Taka skal óskir um slíkt sérstaklega fram í athugasemdum við umsókn og í kynningarbréfi.
Sjá kynningarmyndband.
*Further information for applicants who do not speak Icelandic or have an Icelandic medical licence.
Sjá almennt kynningarmyndband um sérnám í læknisfræði, upplýsingar um sérnám á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Landspítali áskilur sér rétt til að falla frá áformum um ráðningu eða ráða fleiri en einn á grundvelli auglýsingar þessarar
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir. Sjúkrahúsið er kennslusjúkrahús og þekkingarstofnun sem leggur metnað sinn í kennslu og rannsóknir í heilbrigðisvísindum. Sjúkrahúsið á Akureyri leggur áherslu á samvinnu við heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni, tekur þátt í uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á landsvísu og er miðstöð læknisfræðilegrar þjónustu sjúkraflugs í landinu.¿
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sérfræðilæknir, sérnámslæknir, læknir með lækningaleyfi
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.09.2023
Konstantín Shcherbak, kennslustjóri
–
[email protected]
Gunnar Thorarensen, yfirlæknir sérnáms
–
[email protected]
Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Laus er til umsóknar 80-100% staða hjúkrunarfræðings á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða vaktavinnu...
Sækja um starfSérnámsstöður í geðlækningum – Sérnámsstöður lækna á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður í geðlækningum. Fyrri...
Sækja um starfSjúkraliði- Heimahjúkrun HH Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins leitar eftir sjúkraliða í vaktavinnu. Um er að ræða ótímabundið starf á morgun-, kvöld-...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar Nú fjölgum við rýmum á HSS! Vegna mikils skorts á hjúkrunarrýmum fjölgum við rýmum sem tímabundið úrræði til að...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starf