Vilt þú taka þátt í spennandi uppbyggingastarfi?
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar eftir hjúkrunarfræðingi í 100% ótímabundið starf teymisstjóra í heimahjúkrun. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. mars eða eftir nánara samkomulagi.
Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsumdæmi og er með aðsetur í nýju og glæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun sem er sérsniðin að þörfum hvers og eins þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf eru höfð að leiðarljósi.
Megin starfssvið er stýring teymis sem veitir víðtæka hjúkrun í heimahúsum vegna andlegrar og líkamlegrar skerðingar eða vegna langvinnra sjúkdóma. Teymisstjóri ber ábyrgð á gerð þjónustuplans teymisins og ber samábyrgð með öðrum teymum á heildarþjónustu heimahjúkrunar. Teymisstjóri styður við einstaklinga og aðstandendur þeirra sem og samstarfsfólk. Hann skipuleggur og sér um verkstjórn og framkvæmd þeirrar hjúkrunar sem þörf er á hverju sinni hjá skjólstæðingahópi teymisins. Hann tryggir góð samskipti og samvinnu við aðrar sjúkrastofnanir og heilbrigðisstéttir með hagsmuni skjólstæðings að leiðarljósi. Náið samstarf er við móttökuteymi varðandi umfang innskrifta.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.01.2023
Hildur Sigurjónsdóttir
–
[email protected]
Viltu vera á skrá? Heimilislæknir, almennur læknir og læknakandídat Hér geta heimilislæknar og almennir læknar með starfsleyfi, auk kandídata skráð...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar í sumarafleysingar á HSN Sauðárkróki Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Sauðárkróki óskar eftir hjúkrunarfræðingum í sumarafleysingar á hjúkrunar- og sjúkrasviði....
Sækja um starfÞjónustustjóri sjúkraskrárkerfisins Sögu Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að þjónustustjóra sjúkraskrárkerfisins Sögu í deild rafrænnar þjónustu. Um er að ræða tímabundið starf...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar á slysa- og bráðadeild Spennandi tímar framundan! Nú styttist í að við opnum nýja og glæsilega slysa- og bráðamóttöku...
Sækja um starfStjórnarráðið | Auglýsing úr Orra Hoppa yfir valmynd Navigation fyrir stærri skjái Stjórnarráð ÍslandsSkjaldarmerki – Fara heim Verkefni Verkefni...
Sækja um starf